139. löggjafarþing — 8. fundur,  12. okt. 2010.

hagræðingarkrafa í heilbrigðiskerfinu.

[14:27]
Horfa

Siv Friðleifsdóttir (F):

Virðulegur forseti. Nú eru haldnir borgarafundir víða um land vegna tillagna í heilbrigðisþjónustunni. Þær tillögur koma ekki á óvart. Það er nokkuð ljóst að það þarf að endurskipuleggja þjónustuna í þeim anda sem nokkrar úttektir síðustu ára hafa sýnt og tillögur stjórnvalda nú eru á þeim nótum. Þær eru hins vegar of brattar og stjórnvöld ganga of hratt fram miðað við aðstæður og mikið vantar upp á að haft hafi verið eðlilegt samráð við heimamenn og menn hafi reynt að útskýra þessar tillögur.

Úttektir síðustu ára sýna þörf á endurskipulagningu til þess að þjónustan verði faglega góð, örugg og að fjármunir nýtist sem best. Þessar úttektir voru allar unnar áður en bankahrunið varð. Þær sýna þörf á breyttri þjónustu vegna aukinnar sérhæfingar fagfólks, nýrra tækja og tækni, betri samgangna og réttmætra krafna almennings um faglega og örugga þjónustu. Þessar úttektir hafa verið unnar með hagsmuni sjúklinga í huga en taka ekki á byggðasjónarmiðum svo sem hvar þörf er á störfum hverju sinni. Þau sjónarmið vega hins vegar þungt og það er því mikilvægt að endurskipuleggja þjónustuna í þrepum, þ.e. hægar en nú er gert.

Heilbrigðisþjónustan mun þróast í þá átt sem tillögurnar gera ráð fyrir og sú þróun mun verða algjörlega óháð því hvaða stjórnmálaflokkar eru við völd hverju sinni hér á landi og hún er líka óháð því hvort við hefðum lent í bankahruni eða ekki. Það sýnir þróunin sem hefur orðið nú þegar síðustu árin. Ég gagnrýni hins vegar hve hratt þær ganga fram og vil því spyrja hæstv. heilbrigðisráðherra hvort ekki sé rétt að gera þetta hægar, fara hægar í þessa hluti. Og ég spyr einnig, þó að málið sé nú í höndum þingsins, hvort sé betra að hans mati að lækka framlögin (Forseti hringir.) til Landspítalans og FSA eða að lækka hagræðingarkröfuna almennt á heilbrigðisráðuneytinu.