139. löggjafarþing — 8. fundur,  12. okt. 2010.

svör ráðherra í óundirbúnum fyrirspurnum.

[14:43]
Horfa

Einar K. Guðfinnsson (S):

Virðulegi forseti. Þetta eru söguleg tíðindi að verða hérna. Nú hefur hæstv. ráðherra fengið þrjú tækifæri til að svara einni mjög einfaldri spurningu: Styður hæstv. ráðherra fjárlagafrumvarpið? Ég held að svarið sé orðið mjög skýrt hjá okkur öllum, hæstv. ráðherra treystir sér ekki til þess. Þetta eru að verða tíðindi hér, það liggur ekki fyrir hvort ráðherrar ríkisstjórnarinnar styðja frumvarp númer eitt á máladagskránni, sjálft fjárlagafrumvarpið.