139. löggjafarþing — 8. fundur,  12. okt. 2010.

staðan í makrílviðræðunum.

[15:31]
Horfa

Vigdís Hauksdóttir (F):

Virðulegi forseti. Við ræðum um makríl. Makríll er dæmi um nýja auðlind sem er nýlega fundin. Það eru þessar nýju auðlindir sem við finnum, sem engan hafði órað fyrir að við gætum notað og nýtt sem þjóð, sem við þurfum að verja fyrir Evrópusambandinu til hagsbóta fyrir þjóðina.

Hér kemur hæstv. utanríkisráðherra og segir að Íslendingar hafi alltaf barist fyrir íslensku þjóðina, barist fyrir útfærslu landhelginnar o.s.frv. Auðvitað er það hárrétt. Auðvitað ber að þakka fyrir hvernig Íslendingar hafa staðið sig í viðskiptastríðum hingað til en utanríkisráðherrarnir sem sátu þá voru ekki búnir að samþykkja að sækja ætti um aðild að Evrópusambandinu. Málið er komið í hnút. Eins og hér hefur komið fram er það ekki einungis sjávarútvegsstjóri Evrópusambandsins sem gerir athugasemdir við veiðar Íslendinga, það er einnig stækkunarstjórinn og viðskiptastjórinn.

Það kom fram í máli hv. þm Sigurðar Inga Jóhannssonar að þetta séu grímulausar hótanir. Að sjálfsögðu eru þetta grímulausar hótanir. Þetta er akkúrat það sem við stöndum frammi fyrir í dag. Það á að hóta okkur inn í Evrópusambandið. Þetta er akkúrat hnefinn sem þeir sýna að við skulum hafa okkur hæg.

Sem betur fer brugðust bæði hæstv. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og hæstv. utanríkisráðherra við. Ég varð undrandi þegar ég sá undirskrift hæstv. utanríkisráðherra á bréfinu til Evrópusambandsins. Þar var m.a.s. krafa um að Íslendingar mundu ekki senda fulltrúa sinn til London á fundinn, sem nú stendur yfir um markríldeiluna og þeir eru á, nema með þá kröfu í farteskinu að draga ætti hótunarbréfið til baka. Ég stóla á hæstv. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra að standa áfram í fæturna í þessu máli. (Forseti hringir.) Við látum ekki kúga þjóðina til hlýðni, hvorki í makríldeilunni né annarri deilu sem Evrópusambandið kemur til með að beita okkur.