störf þingsins.
Virðulegi forseti. Ég hefði áhuga á því að ræða við hv. þm. Árna Þór Sigurðsson, formann þingflokks Vinstri grænna, út af fjárlögunum. Þau hafa verið kynnt og hefur reynst nokkuð erfitt að finna stuðningsmenn við þau. Það er svolítið merkilegt sökum þeirra hrókeringa sem urðu í ríkisstjórn fyrir nokkrum vikum. Ekki urðu aðeins mannabreytingar í ríkisstjórninni heldur fóru menn í miklum gassagangi að sameina ráðuneytin og sitja nú uppi með eitt risaráðuneyti sem heitir velferðarráðuneyti þar sem menn settu tvö stærstu ráðuneytin undir eitt. Nú getur hver og einn dæmt hvort það sé skynsamlegt, í því öngstræti sem ríkisstjórnin er í út af fjárlögum, út af þeim málaflokkum, heilbrigðismálum og félags- og tryggingamálum, að menn séu að reyna að sameina ráðuneytið á sama tíma. Það er annað mál og ég ætla ekki sérstaklega að ræða það núna.
Þegar mönnum var skipt út og inn í ríkisstjórnina útskýrði hv. þm. Álfheiður Ingadóttir það á þann veg að ástæðan væri sú að verið væri að tryggja að meiri hluti þingmanna styddi fjárlagafrumvarpið. Þess vegna færi hv. þm. Ögmundur Jónasson, nú hæstv. dómsmála-, mannréttinda- og ýmislegt fleira-ráðherra, inn í ríkisstjórnina.
Hæstv. dóms- og mannréttindaráðherra, samgöngu- og sveitarstjórnamálaráðherra, Ögmundur Jónasson, gekkst hins vegar ekki við því að hann styddi fjárlagafrumvarpið í gær. Ég vil þá spyrja um stöðu þess máls. Úr því að hæstv. ráðherra treystir sér ekki til að styðja fjárlagafrumvarpið, sem er nú, held ég, einsdæmi, hver er þá staða þess máls? Og hver er staðan innan Vinstri grænna og í ríkisstjórnarsamstarfinu í tengslum við þetta stóra fjárlagafrumvarp?