139. löggjafarþing — 10. fundur,  14. okt. 2010.

aðkoma lífeyrissjóðanna að lausn skuldavanda heimilanna.

[11:02]
Horfa

fjármálaráðherra (Steingrímur J. Sigfússon) (Vg):

Frú forseti. Þær hugmyndir hafa vissulega verið settar fram af ýmsum, m.a. í greinum, að ein möguleg leið í þessum efnum gæti verið sú að lánardrottnar tækju eignarhlut í húsnæði á móti eigendum og þá breyttist þetta í einhvers konar búseturétt eða hálfgert kaupleigukerfi í sjálfu sér. En það er í eðli sínu bara ákveðin frestun á vandanum. Í grófum dráttum eru kannski þrjár leiðir færar í þessu, þ.e. að horfast í augu við einhverjar afskriftir og láta þær fara fram strax, hvort sem við tökum þar mið af núverandi fasteignamatsverði eða markaðsverði viðkomandi eigna, sem er auðvitað lágt um þessar mundir, eða notum þar einhver önnur viðmið. Það er hægt að hugsa sér að geyma vandann og það hefur svo sem líka verið gert, að setja á einhvers konar biðreikninga skuldir sem eru umfram verðmæti eigna og umfram greiðslugetu manna til að borga af lánum. Og í þriðja lagi er auðvitað hægt að breyta með einhverjum hætti eignasamsetningunni. Allar þessar hugmyndir hafa svo sem verið ræddar. Ég hallast (Forseti hringir.) að því að fyrsta leiðin sé hreinlegust og vænlegust og við Íslendingar munum ekki geta pakkað þessum vanda inn og geymt hann á 0,5–1% vöxtum eins og Japanir gera með sinn skuldavanda og hefur nú ekki reynst þeim vel. (Forseti hringir.) Vaxtakostnaður er annar og hærri hér. Ég held að við eigum í raun og veru fáa aðra kosti í stöðunni en að horfast í augu við vandann og taka á honum (Forseti hringir.) eins og hann blasir við okkur. (Gripið fram í: Raunávöxtun er neikvæð.)