139. löggjafarþing — 10. fundur,  14. okt. 2010.

forsendur fjárlagafrumvarpsins.

[11:04]
Horfa

Baldvin Jónsson (Hr):

Takk fyrir það, frú forseti. Það er nú svo skemmtilegt þegar maður tekur sig eins lítið hátíðlega og ég … (Forseti hringir.) Ég get borið það fyrir mig að ég er nýliði hérna inni og nýr á þingi … (Forseti hringir.)

(Forseti (ÁRJ): Beina orðum til forseta.)

Frú forseti. Ég má ekki tala til mín, sem sagt. Mig langar að spyrja að því eftir að hafa setið núna nokkra morgna í röð í fjárlaganefnd eða í vinnu fjárlaganefndar fyrir hönd Hreyfingarinnar þar sem ætlast er til að við vinnum úr úreltum tölum þjóðhagsspár, þar sem ætlast er til að við vinnum út frá forsendum sem miða við að það rísi álver í Helguvík, (Gripið fram í.) þar sem eru byggðar inn forsendur sem gera ráð fyrir að það verði mjög vaxandi einkaneysla á Íslandi á næsta ári. Þetta eru allt forsendur sem hafa mikið vægi í fjárlagafrumvarpinu og virðast ekki eiga nein tengsl við raunveruleikann. Ef ég sjálfur mundi bjóða upp á þetta úti í hinu almenna atvinnulífi, ætlaðist til að stjórnir fyrirtækja væru að vinna úr þessum forsendum, yrði framtíð mín ekki mjög sæl, mundi ég ætla, innan þess fyrirtækis.

Mig langar að beina þeirri fyrirspurn til hæstv. fjármálaráðherra hvort það sé ekki verulega umhugsunarvert að breyta algjörlega þessum vinnubrögðum, og spara þar af leiðandi þinginu mögulega og fjárlaganefnd einhverjar vikur í vinnu, þar sem er verið að byggja á forsendum sem allir vita að standast ekki og allir eru að bíða eftir nýjum tölum úr þjóðhagsspá í nóvember.