139. löggjafarþing — 10. fundur,  14. okt. 2010.

forsendur fjárlagafrumvarpsins.

[11:08]
Horfa

Baldvin Jónsson (Hr):

Takk fyrir það, frú forseti. (Forseti hringir.) Ég geri mér grein fyrir uppsetningu og þeirri vinnu sem þarf að fara í undirbúning á framlagningu fjárlagafrumvarps, er ekki engu að síður eðlilegt að gera kröfur um að það sé miðað við forsendur sem er m.a. samhugur um innan ríkisstjórnarinnar? Ef stórar forsendur, eins og m.a. álverið sem af einhverjum ástæðum þú ert ekki hrifinn af að sé nefnt hér, eru reiknaðar þarna inn og það liggur fyrir að það er ekki verið að fara í þær framkvæmdir á næsta ári, a.m.k. er ekki samhugur um það innan ríkisstjórnar. Ég er með því ekki persónulega að taka afstöðu með eða á móti þessu álveri, ég er eingöngu að velta fyrir mér eða í rauninni að lýsa furðu minni á þessum vinnubrögðum. Og það byggir ekki undir traust hjá mér heldur að sitja á fundum með ýmsum forráðamönnum, m.a. með ríkisstjórn, í Þjóðmenningarhúsinu í fyrradag og hlusta á (Forseti hringir.) þrjá ráðherra lýsa þremur mismunandi leiðum sem eigi að fara í í úrlausnum