atvinnumál á Suðurnesjum.
Virðulegi forseti. Hér er rætt um atvinnumál á Suðurnesjum. Ýmis atvinnutækifæri hafa verið rædd og staða þeirra tilgreind en ég vil nýta tíma minn til að vekja athygli á þeim aukaverkunum sem langvarandi atvinnuleysi hefur á börn og ungmenni.
Ef litið er á tölur er ljóst að mörg börn á Suðurnesjum búa við það ástand að annað foreldri eða bæði eru atvinnulaus. Börn á heimilum þar sem einstætt foreldri eða báðir foreldrar hafa misst vinnuna eru í mikilli hætti. Um leið og unnið er að fleiri atvinnutækifærum á Suðurnesjum þarf að huga að aukinni aðstoð við þessar fjölskyldur og styrkja samstarf milli þjónustustofnana, svo sem félagsþjónustu og Vinnumálastofnunar, og alls ekki má láta atvinnulaus ungmenni afskiptalaus heldur þarf að virkja þau til athafna eins og gert hefur verið í samstarfi menntamálaráðuneytis og félagsmálaráðuneytis og slíkt þarf að bæta enn frekar.
Neikvæð áhrif kreppunnar koma skýrast í ljós í afleiðingum atvinnuleysis á einstaklinga og fjölskyldur. Langtímaatvinnuleysi getur leitt til fátæktar og dæmin sýna að fátækt barn er líklegt til að verða fátækur fullorðinn. Varanlegar afleiðingar fátæktar eru því skaðlegar bæði börnum og fullorðnum og mikið í húfi að koma í veg fyrir að heimilin verði fátæktinni að bráð.
Tengsl eru milli heilsufars og efnahags og getur fátækt leitt til varanlegs heilsubrests og þunglyndis. Atvinnuleysi leiðir oft til félagslegrar einangrunar og skaðar sjálfstraustið, ekki síst hér á landi þar sem hátt atvinnustig hefur verið einkenni þjóðarinnar og samræður við ókunnuga hefjast oft á orðunum: Við hvað starfar þú? Þátttaka í atvinnulífinu er eins konar aðgangskort að samfélaginu og hluti af sjálfsmynd fólks.
Á Suðurnesjum er atvinnuleysi hlutfallslega mest, þar eru flest gjaldþrot og hlutfallslega flest börn í hættu vegna þess sem í því felst að alast upp við slíkar aðstæður. Það er skylda okkar jafnaðarmanna að líta til Suðurnesja og leggjast á árarnar til að greiða götu fjölbreyttra og skynsamlegra atvinnutækifæra, auka ráðstöfunartekjur og jöfnuð um leið, og horfa á lausnir út frá sjónarhóli barna, ekki síst þær sem styrkja mæður þeirra. (Gripið fram í: Heyr.)