skuldir heimilanna.
Frú forseti. Við ræðum hér skuldavanda heimilanna og hvernig má bregðast við honum. Ég ætla ekki í vinsældakapphlaup og yfirkaup á einu eða neinu heldur að fara inn í þær hugmyndir sem ég tel raunhæfar til að koma til móts við vanda heimilanna.
Í fyrsta lagi þarf að efla atvinnu vegna þess að atvinna eflir tekjur í ríkissjóð og eykur ráðstöfunartekjur fólks, fækkar atvinnulausum og gjöldin hverfa í Atvinnuleysistryggingasjóð eða lækka töluvert. Það getum við gert með því að hrinda úr vegi þeim hindrunum sem eru til uppbyggingar atvinnulífs. Við getum skoðað fjárlögin samhliða því að hækka skatta, draga úr vaxtabótum, leggja álögur á áfengi og tóbak o.fl. sem eykur höfuðstól lána. Þessu getum við breytt strax. Við getum lækkað skatta á fólk, millitekjufólk, láglaunafólkið í landinu, og við getum svo komið með persónuafsláttinn þar á móti og þess vegna notað hann til að hækka afslátt þeirra sem minnst mega sín. Þetta getum við gert strax og þetta er á valdi þingsins. Í þriðja lagi varð forsendubrestur í hagkerfinu hér og þann forsendubrest verða lánþegar og lánveitendur að bera hvorir tveggja. Það er ekki sanngjarnt og verður aldrei sanngjarnt að þann forsendubrest beri eingöngu lántakendur í landinu. Það kann að vera dýrt að fara í einhvers konar niðurfærslu skulda en það verður, frú forseti, að virða þann forsendubrest sem hér varð, þar verða lántakendur og lánveitendur að tala saman og deila þeim bresti.
Ég ítreka, frú forseti, að hér á þinginu getum við strax rutt úr vegi þeim hindrunum sem eru í uppbyggingu atvinnulífs. Við getum strax tekið á þeim hækkunum sem eru í fjárlagafrumvarpinu og fara beinustu leið inn í hækkun höfuðstóls lána. Við getum aukið ráðstöfunartekjur fólks með því að lækka skatta og hverfa frá þriggja þrepa skattþrepinu. Þá verður bæði efnahagslegur (Forseti hringir.) og félagslegur hagvöxtur í landinu og fólkið sér hér einhverja framtíð til uppbyggingar.