139. löggjafarþing — 11. fundur,  14. okt. 2010.

greiðsluaðlögun einstaklinga.

55. mál
[14:08]
Horfa

Frsm. fél.- og trn. (Sigríður Ingibjörg Ingadóttir) (Sf):

Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti félags- og tryggingamálanefndar um frumvarp til breytingar á lögum nr. 101/2010, um greiðsluaðlögun einstaklinga.

Nefndin fékk á sinn fund fulltrúa frá félags- og tryggingamálaráðuneyti og umboðsmanni skuldara, einnig frá Sýslumannafélaginu, Samtökum fjármálafyrirtækja og Íslandsbanka.

Frumvarpið felur í sér að vegna málafjölda hjá umboðsmanni verði fyrirkomulagi breytt og að skuldari fái fyrr frestun á greiðslu skulda sinna en kveðið er á í lögum um greiðsluaðlögun. Samkvæmt lögum um greiðsluaðlögun þarf umboðsmaður að hafa samþykkt umsókn um greiðsluaðlögun til að frysting samkvæmt 11. gr. taki gildi, en hún felur m.a. í sér að ekki má ganga að eignum skuldara og ekki má krefja hann um greiðslu vegna krafna sem til komu fyrir samþykki greiðsluaðlögunar. Frumvarpið felur í sér bráðabirgðaákvæði þar sem frestunin er flutt framar þannig að um leið og umboðsmaður hefur móttekið umsókn getur frestun hafist. Þá er umsókninni þinglýst og inn á eignir skuldara þannig að hann er í vari fyrir rukkunum kröfuhafa og eins fyrir því að missa heimili sitt á meðan umboðsmaður skuldara fjallar um mál hans.

Nefndin gerir nokkrar breytingartillögur. Í nefndinni var rætt hvort birta ætti þessa þinglýsingu í Lögbirtingablaðinu, þ.e. skráningu um tímabundna frestun greiðslu. Þær breytingar sem við gerðum voru miðaðar við hagsmuni skuldara. Birtingu í Lögbirtingarblaðinu, sem annars mundi eiga sér stað eftir að samþykki umboðsmanns lægi fyrir, verður flýtt. Það á að koma í veg fyrir rukkanir kröfuhafa þar sem upplýsingarnar hafa þá verið birtar opinberlega. Við teljum að það muni þó ekki duga til að allir kröfuhafar verði upplýstir um frestunina og það kunni að leiða til þess að gengið sé á skuldara þrátt fyrir það. Þar af leiðandi er mjög mikilvægt að sá sem skilar inn umsókn um greiðsluaðlögun fái fullar upplýsingar um rétt sinn og skyldur. Rétturinn er t.d. sá að þurfa ekki að greiða inn á kröfur sem hafa myndast frá því fyrir frestunina og skyldurnar eru þær að takast ekki á hendur frekari skuldbindingar eftir að frestunin hefur verið veitt.

Við gerum einnig breytingartillögu um hvenær frestun lýkur. Ef samþykki fyrir greiðsluaðlögun fæst og greiðsluaðlögunarumleitan hefst mun frestunin náttúrlega gilda. En ef umboðsmaður hafnar umsókn eða skuldari dregur hana til baka lýkur frestuninni. Frestunin mun þó þurfa að gilda út þann tíma sem skuldari hefur til að kæra niðurstöðu umboðsmanns til kærunefndar. Við hnykkjum á þessu í lögunum og tekið er fram að ekki þurfi að greiða þinglýsingargjald af skráningu í þinglýsingabækur samkvæmt ákvæði þessu.

Ég ætla að drepa á því helsta sem rætt var í nefndinni um þetta. Við lögðum mikla áherslu á að með bráðabirgðaákvæðinu myndaðist ekki nýr flöskuháls hjá embætti umboðsmanns skuldara. Að sjálfsögðu þyrfti skuldari að leggja fram lágmarksupplýsingar en mest af þeim væri hægt að sækja rafrænt af hálfu umboðsmanns skuldara með leyfi skuldarans. Nefndin leggur mikla áherslu á þetta og jafnframt að skuldari fái eins greinargóðar upplýsingar um þýðingu frestunarinnar og tök eru á.

Þá vil ég að lokum, frú forseti, taka það fram að nefndin vinnur að frumvarpi til laga og breytingum á sömu lögum en á löggjöfinni sem við settum í vor eru ýmsir agnúar sem við viljum sníða af. Það var mat bæði ráðherra og nefndarinnar að það lægi á þessari tilteknu breytingu þannig að við ákváðum að drífa hana í gegn með þó nokkru hraði vegna þeirra fjölskyldna sem eiga yfir höfði sér nauðungarsölur. En við munum gefa okkur betri tíma til að vinna að frumvarpinu með fleiri breytingum. Við munum flýta þeirri vinnu en einnig reyna að gera hana þannig úr garði að breytingarnar séu vandlega íhugaðar.

Undir nefndarálitið sem ég mælti hér fyrir rita framsögumaður sem hér stendur og hv. þingmenn Ólafur Þór Gunnarsson, Pétur H. Blöndal, Guðmundur Steingrímsson, Árni Þór Sigurðsson, Guðlaugur Þór Þórðarson, Þórunn Sveinbjarnardóttir og Halldóra Lóa Þorvaldsdóttir.