139. löggjafarþing — 12. fundur,  14. okt. 2010.

skilaskylda á ferskum matvörum.

12. mál
[14:53]
Horfa

Flm. (Einar K. Guðfinnsson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka þessar góðu viðtökur hjá hv. þm. Þuríði Backman og tek undir það sem hún sagði. Fyrir hönd sjávarútvegs- og landbúnaðarnefndar leyfi ég mér að segja, þar sem ég er eini þingmaðurinn úr þeirri nefnd sem sit þessa umræðu að þessu sinni, að ég fagna því að þetta mál komi til umsagnar nefndarinnar. Það er rétt sem hv. þingmaður segir, þessi málefni heyra undir nefndina m.a. vegna þess að Matvælastofnun heyrir jú undir sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið, þannig að ég held að mjög vel fari á því að þetta mál komi jafnframt til umsagnar hjá sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd.