atkvæðagreiðsla á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hæstv. utanríkisráðherra fyrir þetta svar. Það er ágætt að ráðherrann og flokkur hans eru að átta sig á því að vatn er mikil auðlind. Ég hef talað mjög fyrir því að aðgangur að hreinu vatni sé eitt af því sem skortir nú þegar í heiminum og að 2030 verði algjör vatnsskortur, ásamt skorti á matvælum og orku.
Hæstv. utanríkisráðherra er að vakna til lífsins með þetta, því kratar voru hér í eina tíð ekki til umræðu um auðlindir eða annað, nú skal fara með auðlindirnar í aðra átt, en sem betur fer, eins og hefur komið á daginn, eru nú fleiri á því að skoða þurfi vatnalögin en hæstv. utanríkisráðherra.
Ég er svo hrædd um að þetta hafi verið gerviástæður varðandi atkvæðagreiðsluna sem fór fram í sumar, því af hverju í ósköpunum ætti Ísland að sitja hjá í svo mikilvægri atkvæðagreiðslu, skipa sér í hóp 41 ríkis, á meðan rúmlega 120 ríki sögðu já við þessari tillögu? Jú, það er gefin upp sú gerviástæða að þetta spilli jafnvel fyrir þeim samningi sem á að vinna í Genf. Fyrir því eru engin lagaleg rök. Þessi atkvæðagreiðsla var ekki bindandi fyrir ríkið að því marki að hún hefði áhrif varðandi fjárhagsstöðu eða skipulag Íslands til framtíðar. Þetta var fyrst og fremst mórölsk viljayfirlýsing.
Ef til vill er hér eitthvað undir steini, kannski vill hæstv. utanríkisráðherra fyrst hann ákvað þetta aleinn, eins og kom fram í svari hans og bar þetta ekki undir utanríkismálanefnd, hanga í skottinu á þeim 16 Evrópusambandsríkjum sem sátu líka hjá.
Ég var undrandi þegar þessar fréttir fóru að berast. Íslenska þjóðin var undrandi, því hið hreina Ísland með þau vatnsréttindi sem það hefur á fyrst og fremst að skilja (Forseti hringir.) þá þörf sem heimurinn hefur núna fyrir hreint vatn.