139. löggjafarþing — 15. fundur,  19. okt. 2010.

nauðungarsala.

58. mál
[16:40]
Horfa

Frsm. allshn. (Róbert Marshall) (Sf):

Virðulegur forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti um frumvarp til laga um breyting á lögum um nauðungarsölu, nr. 90/1991, með síðari breytingum.

Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Bryndísi Helgadóttur frá dómsmála- og mannréttindaráðuneytinu.

Með þessu frumvarpi er lögð til breyting á ákvæði til bráðabirgða um að tímabilið sem gerðarþoli hefur getað óskað eftir á nauðungarsölu á íbúðarhúsnæði renni ekki út 31. október 2010 heldur verði gildistími ákvæðisins framlengdur til 31. mars 2011 að uppfylltum öllum sömu skilyrðum og gilt hafa um slíka fresti til þessa. Ákvæðið er bundið við fasteign þar sem gerðarþoli heldur heimili og hefur skráð lögheimili, enda sé um að ræða húsnæði sem ætlað er til búsetu.

Forsaga málsins er rakin í nefndarálitinu. Í stuttu máli var ákveðið á síðasta ári að gefa skuldurum frest svo að þeir gætu leitað eftir úrræðum sem þá höfðu nýlega verið sett fram til lausnar á skuldavanda heimilanna.

Í umræðum í nefndinni kom fram að sú breyting sem frumvarpið felur í sér væri eins konar aukaafurð þeirra breytinga sem gerðar voru nýverið á lögum nr. 101/2010, um greiðsluaðlögun einstaklinga, en þar var ákvæði til bráðabirgða bætt við lögin þess efnis að tímabundin frestun greiðslna hefjist þegar einstaklingur sækir um greiðsluaðlögun en ekki þegar umsókn hans hefur verið samþykkt eins og lögin kveða á um. Jafnframt er lagt til að slíkt hið sama gildi um umsóknir um greiðsluaðlögun sem borist hafa til umboðsmanns skuldara frá stofnun embættisins 1. ágúst sl.

Nefndin tekur fram að sá frestur sem veittur er í þessu frumvarpi gildir fyrir fleiri en þá sem sækja um greiðsluaðlögun einstaklinga hjá umboðsmanni skuldara, t.d. þá sem sækja um sértæka skuldaaðlögun hjá bönkunum eða þá sem eru sjálfir í samningaviðræðum við kröfuhafa sína.

Fram kom að þessi framlengdi frestur er enn að nýju hugsaður til þess að gefa skuldurum kost á að leysa úr málum sínum með samningum við kröfuhafa eða með því að leita til embættis umboðsmanns skuldara. Þá kom fram að hjá sýslumönnum hefur verið haft samband við þá sem eiga eignir sem eru að fara í framhaldssölu en á sýslumönnum hvílir rík leiðbeiningarskylda. Þá kom einnig fram að hjá ráðuneytinu er upplýsingum safnað saman frá sýslumönnum og þeim komið til embættis umboðsmanns skuldara sem mun vinna að því að hafa samband við skuldara til þess að benda þeim á möguleg úrræði til lausna. Nefndin tekur fram að hún telur eðlilegt að veita þennan framlengda frest enda ljóst að mikill málafjöldi er fyrirliggjandi í kerfinu og frestur til þess fallinn að dreifa þeim fjölda nokkuð.

Þór Saari, sem er áheyrnarfulltrúi í allsherjarnefnd, var samþykkur þessu. Auk hans skrifa allir hv. þingmenn undir sem voru viðstaddir fund nefndarinnar í fyrradag, Jórunn Einarsdóttir, Birgir Ármannsson, Valgerður Bjarnadóttir, Álfheiður Ingadóttir, Vigdís Hauksdóttir og Sigurður Kári Kristjánsson auk þess sem hér stendur.