139. löggjafarþing — 15. fundur,  19. okt. 2010.

nauðungarsala.

58. mál
[16:45]
Horfa

Birgitta Jónsdóttir (Hr):

Herra forseti. Ég fagna því að enn verður því skotið á frest að fólk þurfi að sjá heimili sín á nauðungarsölu. Mér þykir miður að ekki sé komið með heildstæða lausn á þessu máli þannig að ekki sé endalaust verið að fresta málum heldur tekið á þeim á þann hátt sem fólk er að kalla eftir.