139. löggjafarþing — 19. fundur, 2. nóv. 2010.
varamaður tekur þingsæti.
Borist hefur bréf frá þingflokksformanni Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs, Árna Þór Sigurðssyni, um að Jórunn Einarsdóttir geti ekki lengur gegnt varaþingmennsku sem 4. þm. Suðurk. í stað Atla Gíslasonar.
Mánudaginn 25. október sl. tók sæti á Alþingi fyrsti varamaður á lista Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs í kjördæminu, Arndís Soffía Sigurðardóttir. Hún hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðin velkomin til starfa á ný.