139. löggjafarþing — 23. fundur,  9. nóv. 2010.

fjarskipti.

136. mál
[15:50]
Horfa

Einar K. Guðfinnsson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Fyrst aðeins út af NMT-kerfinu. Ég lagði fram þessa fyrirspurn á síðasta þingi og hæstv. fyrrverandi samgönguráðherra svaraði henni prýðilega. Þar kom m.a. fram að ljóst væri að einhver svæði yrðu afskipt þegar NMT-símakerfið yrði tekið úr notkun. Svar hæstv. ráðherra var að kalla eftir frekari upplýsingum svo hægt væri að kortleggja hvernig þétta mætti netið að nýju. Ég ætlast ekki til að hæstv. ráðherra hafi þau svör á hraðbergi en hvet til þess að þessum málum verði fylgt fast eftir. Þarna er mjög mikið í húfi. Þarna er í húfi öryggi sjómanna og einnig öryggi ferðamanna. NMT-kerfið dekkaði auðvitað svæðið fyrir sjómenn númer eitt, tvö og þrjú og síðan ferðamenn. Það er engan veginn viðunandi fyrir þá aðila sem stóluðu á þetta að sitja uppi með þessar gloppur í kerfinu.

Það er alveg rétt sem hæstv. ráðherra sagði um símasambandið. Það er mjög mikilvægt að bæta úr því. Við þingmenn af landsbyggðinni verðum mjög varir við að kallað er eftir þessu víða, ekki síst til sveita. Í vaxandi ferðamannastraumi verður líka vart við að fólk er mjög undrandi á því að GSM-símasambandið sé eins gloppótt og raun ber vitni. Við sem erum tíðir vegfarendur á þjóðvegum landsins þekkjum hversu óþægilegt það er, þegar við erum að nýta símann m.a. í atvinnuskyni, þegar sambandið rofnar fyrirvaralaust á aðskiljanlegustu stöðum. Smám saman lærir maður reyndar á þessi göt í þjóðvegakerfinu en það er engu að síður óþægilegt og fyrir utan það að þetta hamlar atvinnustarfsemi víða um landið eins og hefur verið komið að í ræðum.