aðgerðir til að stuðla að sátt við heimilin.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna og sérstaklega hvernig hann nálgast gagnrýnina því að hann kallar eftir ítarlegri útskýringum og gerir athugasemdir við sumt og það finnst mér mjög gott. Það er reyndar ekki gott ef menn leggja fram einhverja tillögu, fá enga gagnrýni og þurfa ekki að færa fram frekari rök þannig að ég fagna því hvernig hv. þingmaður flutti ræðu sína áðan.
Mig langar aðeins að koma inn á það sem menn sögðu um skattahækkanir. Hv. þingmaður segir að það sé mjög æskilegt að leita eftir jöfnuði og jafnvægi en mig langar að spyrja hv. þingmann nánar út í það vegna þess að í framkvæmd fjárlaga fyrir árið 2010 kemur fram að sennilega mun vanta um 10 milljarða af skatttekjum ríkisins frá einstaklingum sem annars var reiknað með. Við erum þegar komin með um 6,4 milljarða á fyrstu níu mánuðunum og það stefnir í 10 milljarða halla. Hér er þó minna atvinnuleysi en reiknað var með í fjárlagafrumvarpinu fyrir árið 2010.
Síðan er ljóst að ýmislegt þarf að bæta í fjáraukalögunum sem við munum ræða eftir nokkrar vikur, mesta skekkjan þar er tæplega 1,8 milljarðar. Hún er vegna þess að ráðstöfunartekjur heimilanna hafa minnkað. Við getum verið sammála um að hluti af ástæðunni eru skattahækkanir fyrir utan lækkað starfshlutfall og þar fram eftir götunum. Þess vegna langar mig að spyrja hv. þingmann hvort hann hafi ekki áhyggjur af því sem hann sagði áðan, að menn verði að passa sig á því að að skattpína fólkið ekki of mikið í ljósi þeirra upplýsinga sem við höfum í höndunum eftir að þessar skattahækkanir voru samþykktar. Um 10 milljarða mun vanta upp á af tekjuskatti einstaklinga, um 10%, sem er nokkuð hátt hlutfall af þeim skattstofni. Samt er minna atvinnuleysi en var reiknað með, forsendur frumvarpsins hefðu átt að gera það að verkum að við fengjum meiri tekjur vegna minna atvinnuleysis þannig að þróunin fer í þveröfuga átt. Mig langar að fá sjónarmið hv. þingmanns, hvort hann telji ekki í ljósi þessara staðreynda að við séum komin of langt í skattlagningu á einstaklinga í landinu.