139. löggjafarþing — 24. fundur,  10. nóv. 2010.

störf þingsins.

[14:04]
Horfa

Ragnheiður E. Árnadóttir (S):

Virðulegi forseti. Ríkisstjórnin hélt ríkisstjórnarfund sinn í gær í Víkingaheimum í Reykjanesbæ eins og kunnugt er. Ég tel mjög jákvætt að ríkisstjórnin sé búin að átta sig á því að Suðurnesin eigi við vandamál að glíma sem er bágt atvinnuástand. Ég tel líka mjög jákvætt að þarna sannast að barátta heimamanna fyrir að ná athygli og eyrum ríkisstjórnarinnar hefur skilað árangri. Menn funduðu, menn ræddu málin, 10 atriða listi var settur fram af hálfu ríkisstjórnarinnar og það er líka jákvætt. Eftir fundinn lögðu menn áherslu á að allir væru í sama bátnum og að nú ættu allir að róa í sömu átt. Það er líka jákvætt.

Ég tók hins vegar eftir því að á þessum 10 atriða lista voru nánast engin þeirra verkefna sem heimamenn á svæðinu hafa lagt mesta áherslu á og það eru þau verkefni sem við vitum öll að mestur ágreiningur hefur verið um, m.a. á hinu háa Alþingi. Þessi verkefni eru ekki sérstaklega nefnd á listanum. En það getur verið að það sé líka jákvætt, þá þýðir það a.m.k. að ekki sé búið að slá þau formlega út af borðinu.

Til að taka af allan vafa langar mig til að spyrja hv. þingmenn og hæstv. ráðherra ríkisstjórnarinnar hvort það sé ekki örugglega þannig að fjarvera þessara verkefna af þessum lista þýði að verkefnin séu í ákveðnum farvegi og að ríkisstjórnin sé einhuga að baki heimamönnum, rói nú í sömu átt með heimamönnum, í þá átt að klára þessi verkefni og koma þeim í höfn. Þetta eru verkefni sem gefa vel launuð og varanleg störf, álverið, gagnaverið, kísilver, fleiri en eitt, ECA-flugverkefnið, uppbygging Helguvíkurhafnar, til hagsbóta fyrir svæðið, stuðningur við fiskvinnslu á svæðinu, stuðningur við Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, stuðningur við Keili sem menntastofnun. Er það ekki örugglega þannig að ríkisstjórnin ætli að róa með heimamönnum (Forseti hringir.) í sama bátnum í sömu átt og hjálpa heimamönnum við að klára þessi verkefni (Forseti hringir.) og koma atvinnumálum á Suðurnesjum í farsælt horf?