sérgreining landshlutanna sem vettvangur rannsókna, kennslu og atvinnuþróunar.
Frú forseti. Ég er feginn að heyra þessi viðbrögð hv. þingmanns vegna þess að ég er sammála því markmiði sem hún setur upp, að það sé mikilvægt einmitt að nýta það fjármagn sem við höfum til ráðstöfunar í rannsóknir og kennslu á háskólastigi eins vel og við mögulega getum, ekki síst á þeim tímum sem við lifum núna. Ég tel mikilvægt að gera það. Ég heyri að hv. þingmaður hefur aðeins hugsað þetta líka að reyna að ná einmitt þessu fram. Ég hafði svolitlar áhyggjur af því hvort það mundu koma upp kröfur um mjög margar stofnanir af þessum toga, margar miðstöðvar af þessum toga vítt og breitt um landið, og þannig gæti niðurstaðan orðið sú að fjármagnið dreifðist um of og mundi þá e.t.v. ekki nýtast sem skyldi.
Ég heyri að hv. þingmaður hefur einmitt hugsað þetta þannig að nýta megi landshlutana, styrkleika hvers fyrir sig og sérstöðu til að efla rannsóknir og atvinnuþróun í viðkomandi landshluta á grundvelli þeirra gæða sem þangað er að sækja. Það finnst mér vera jákvætt. Ég er alla vega feginn að heyra þessi viðhorf þingmannsins og einnig að hún telur eðlilegt að það sé samráð og samstarf milli mennta- og menningarmálaráðuneytisins og annarra ráðuneyta og stofnana. Og ég tek undir það sérstaklega með sveitarfélögin, sem mér eru almennt mjög kær en mér láðist að nefna af einhverjum ástæðum, að það er mjög mikilvægt að virkja þau til samstarfs í þessu samhengi.