139. löggjafarþing — 25. fundur,  11. nóv. 2010.

málefni fatlaðra.

[14:07]
Horfa

félags- og tryggingamálaráðherra (Guðbjartur Hannesson) (Sf):

Hæstv. forseti. Ég held að við eigum ekki að tala niður til hvorki starfsmanna né sveitarfélaga í sambandi við þennan tilflutning. Ég held að öllum þeim sem vinna að þessum málum sé efst í huga hvaða þjónusta verður í boði eftir þennan tilflutning. Það held ég að hv. þingmanni — þekki ég af málflutningi hans — sé líka efst í huga, þ.e. hvaða þjónusta verður veitt og hvort við munum standa vel að henni eftir flutninginn. Ég treysti á að svo verði og veit raunar að sveitarfélögunum er fyllilega treystandi fyrir þessu verkefni. Þessu fylgir ágætur peningur til að gera betur en gert hefur verið. Það koma inn nýjungar eins og varðandi notendastýrða þjónustu sem er eitt af því sem hv. félags- og tryggingamálanefnd fór með í gegnum þingið og var flutt hér sem þingsályktunartillaga og samþykkt. Það eru hins vegar nýjungar sem fylgja þessari breytingu.

Það er auðvitað ljóst að þegar málaflokkurinn færist um áramót er málið ekki afgreitt. Það þarf auðvitað að vinna í því áfram, það þarf að úrskurða um ýmis atriði í framhaldinu. Þess vegna er gerð (Forseti hringir.) samstarfsáætlun um hvernig eigi að fylgja þessu eftir og síðan sett inn endurskoðunarákvæði eftir þrjú ár. Ég treysti á að þetta gangi allt vel eftir og að þjónusta við fatlaða batni í landinu.