139. löggjafarþing — 27. fundur,  16. nóv. 2010.

lax- og silungsveiði.

202. mál
[16:46]
Horfa

sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra (Jón Bjarnason) (Vg):

Frú forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi á þskj. 219, mál nr. 202, en um er að ræða frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 61/2006, um lax- og silungsveiði, með síðari breytingum. Frumvarp þetta er samið í sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu að tilhlutan sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra en með því eru lagðar til breytingar á lögum nr. 61/2006, um lax- og silungsveiði, með síðari breytingum.

Með frumvarpinu eru annars vegar lagðar til breytingar á ákvæði 10. gr. laganna um innlausn veiðiréttar en samkvæmt því ákvæði er innlausnarrétturinn tímabundinn og gildir til 30. júní 2011. Samkvæmt frumvarpinu er lagt til að gildistími innlausnarréttarins verði framlengdur um fimm ár, þ.e. til 30. júní 2016.

Hins vegar eru með frumvarpinu lagðar til breytingar á skipan matsnefndar samkvæmt 44. gr. laganna á þann veg að í stað þess að Hæstiréttur Íslands tilnefni tvo menn í nefndina og að annar þeirra verði formaður, skipi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra einn mann í nefndina án tilnefningar sem verði jafnframt formaður nefndarinnar. Áfram er gert ráð fyrir að Hæstiréttur tilnefni einn mann í nefndina. Þá verður áfram gert ráð fyrir að Landssamband veiðifélaga tilnefni einn mann í sömu nefnd.

Réttur til innlausnar veiðiréttinda samkvæmt 10. gr. laga nr. 61/2006 fylgir þeim jörðum sem veiðiréttindi hafa áður tilheyrt og er eins og áður segir bundinn þeim tímatakmörkunum að ef innlausn hefur ekki farið fram innan fimm ára frá gildistöku laganna sem var 1. júlí 2006 fellur slíkur réttur endanlega niður í eitt skipti fyrir öll, þ.e. 30. júní 2011.

Í sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu er nú til meðferðar mál til ákvörðunar þar sem krafist er innlausnar samkvæmt framangreindu ákvæði 10. gr. laga nr. 61/2006, sem ekki er enn lokið. Um er að ræða flókin eignarréttarleg ágreiningsefni sem ekki er útilokað að leitað verði úrlausnar dómstóla um þegar ráðuneytið hefur lokið þeirri vinnu sem er á verksviði þess samkvæmt framangreindu ákvæði. Ljóst er að slíkur málarekstur getur dregist, m.a. vegna þess hve flókin og umfangsmikil slík mál geta verið.

Einnig hefur komið fram í viðræðum sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins við hagsmunaaðila að talið er æskilegt að gildistími þessa ákvæðis verði framlengdur um tiltekinn tíma eða í fimm ár.

Þegar litið er til þessa er talið rétt að framlengja gildistíma ákvæðisins um tiltekinn tíma á meðan leyst verður úr þeim málum sem til meðferðar eru nú samkvæmt framangreindu ákvæði 10. gr. laga nr. 61/2006. Hins vegar skal áréttað að ef hið nýja ákvæði skv. 1. gr. þessa frumvarps verður að lögum heimilar það einnig rétthöfum að gera nýjar kröfur um innlausn veiðiréttinda allt fram að því þegar gildistíma ákvæðisins er lokið.

Með vísan til framanritaðs er lagt til að það tímamark sem tilgreint er í 5. mgr. 10. gr. laga nr. 61/2006, um lax- og silungsveiði, verði framlengt úr fimm árum í tíu, þ.e. til 30. júní 2016.

Matsnefnd samkvæmt lögum nr. 61/2006, um lax- og silungsveiði, hefur ýmis verkefni samkvæmt lögunum, m.a. framkvæmd matsgerða og gerð arðskráa, sbr. 44. gr. laganna, úrlausn ágreinings um skiptingu veiðiréttar í óskiptri sameign, sbr. 2. mgr. 8. gr., úrlausn ágreinings um verðmæti innleysts veiðiréttar, sbr. 10. gr., ákvörðun bóta fyrir tjón af svæðisbundinni friðun eða veiði, sbr. 3. mgr. 24. gr., ákvörðun bóta fyrir tjón vegna notkunar fastra veiðivéla, sbr. 6. mgr. 28. gr., ákvörðun um skiptingu veiðitíma, veiðistaða, endurgjald o.fl. fyrir stangveiði í straumvatni, sbr. 4. mgr. 29. gr., ákvörðun bóta fyrir tjón vegna gerðar fiskvega, sbr. 4. mgr. 34. gr., og ákvörðun bóta vegna tjóns ef sannað þykir að framkvæmd eða mannvirkjagerð í eða við veiðivatn spilli fiskgengd, lífríki veiðivatns eða öðrum þeim hagsmunum sem verndar njóta samkvæmt lögunum, sbr. 36. gr.

Matsgerðum matsnefndarinnar verður ekki skotið til ráðherra eða annarra stjórnvalda, sbr. 48. gr. laganna, en þær er hins vegar að sjálfsögðu unnt að bera undir dómstóla.

Samkvæmt gildandi ákvæði 44. gr. laga nr. 61/2006, um lax- og silungsveiði, er gert ráð fyrir að tveir nefndarmann séu skipaðir samkvæmt tilnefningu Hæstaréttar og að annar þeirra verði formaður nefndarinnar en einn maður er tilnefndur af Landssambandi veiðifélaga.

Ekki er samkvæmt núgildandi lögum gert ráð fyrir því að sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra tilnefni mann í matsnefndina. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra ber hins vegar ábyrgð á lax- og silungsveiðimálum hér á landi en þetta er einn af þeim málaflokkum sem eru á sviði sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins. Einnig er ljóst að meiri hluti laxveiðiáa landsins er í eigu bænda en sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið fer með yfirstjórn landbúnaðarmála hér á landi.

Þegar litið er til þessa verður að telja rétt að sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra skipi sjálfur a.m.k. einn mann í matsnefndina. Einnig vek ég athygli á að á aðalfundi Landssambands veiðifélaga sem haldinn var í Mosfellsbæ 11. og 12. júní 2010 kom fram að fundurinn beindi því til stjórnar að beita sér fyrir skoðun á lögum nr. 61/2006, um lax- og silungsveiði, hvað varðar skipun í matsnefnd og meðferð arðskrármála fyrir dómstólum.

Með frumvarpinu er því lagt til að í stað þess að tveir nefndarmenn séu tilnefndir af Hæstarétti Íslands og annar þeirra skuli vera formaður, skuli sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra skipa einn nefndarmann án tilnefningar sem skal vera formaður nefndarinnar. Áfram er gert ráð fyrir því að Hæstiréttur tilnefni einn mann í nefndina eins og verið hefur samkvæmt gildandi lögum. Þá er eins og áður segir gert ráð fyrir því að Landssamband veiðifélaga tilnefni einn mann í nefndina.

Frú forseti. Þessi málaflokkur er á ábyrgð sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og þau ákvæði sem lögð eru til í þessu frumvarpi um breytingar á skipan matsnefndarinnar eru því eðlileg og til hagsbóta fyrir atvinnugreinina og veiðiréttareigendur. Ég tel einnig að ríkja muni almenn sátt um þau og þær aðrar breytingar sem felast í frumvarpinu meðal hagsmunaaðila.

Á fylgiskjali með frumvarpi þessu er að finna kostnaðarumsögn fjármálaráðuneytisins um frumvarpið. Ég vil að öðru leyti vísa til greinargerðar þeirrar er fylgir frumvarpinu en þar er fjallað um og gerð grein fyrir efni þess.

Frú forseti. Að lokinni þessari umræðu legg ég til að frumvarpinu verði vísað til hv. sjávarútvegs- og landbúnaðarnefndar og 2. umr.