fjármálafyrirtæki.
Virðulegi forseti. Eins og fram hefur komið í orðum þeirra ræðumanna sem hafa stigið í stólinn á undan mér, viljum við framsóknarmenn gjarnan gera það sem við getum til að greiða fyrir afgreiðslu málsins.
Það er hins vegar mjög áhugavert að lesa dóminn sem féll fyrir franska áfrýjunardómstólnum 4. nóvember 2010. Dómur í málinu lá fyrir 25. júní 2009 en síðan tók Landsbankinn ákvörðun um að áfrýja málinu 7. júlí 2009. Þá þegar ættu í rauninni að hafa legið fyrir upplýsingar um að hugsanlega væri einhver réttaróvissa í lögum um fjármálafyrirtæki. Frá því að bankarnir féllu höfum við breytt lögum um fjármálafyrirtæki sjö sinnum, samkvæmt síðustu talningu minni. Það er ekki langt síðan við fórum í gegnum mjög mikla vinnu á síðasta löggjafarþingi við breytingar á lögum um fjármálafyrirtæki. Þá hefði í raun og veru verið mjög einfalt mál fyrir okkur að setja inn þessar breytingar. Við hefðum getað gefið okkur töluvert meiri tíma í að fara í gegnum lagabreytingarnar og velt hlutunum betur fyrir okkur varðandi einstakt orðalag og hvort við gætum að einhverju leyti haft textann enn skýrari til að tryggja að við kæmum vilja Alþingis skýrt á framfæri.
Eitt af því sem við ályktuðum sérstaklega um í þingmannanefndinni var mikilvægi þess að vanda vinnu við lagasetningu. Við skoruðum raunar á ráðherra að gefa þinginu góðan tíma til að fara í gegnum frumvörp þeirra. Ég mundi því vilja að í framhaldinu kölluðum við skilanefndirnar og slitastjórnirnar á fund nefndarinnar til að fá frekari ábendingar frá þeim um það sem hefur verið að koma upp í þeim fjöldamörgu málaferlum sem þær standa í. Eins og kom fram á þeim ágæta fundi sem við áttum með fulltrúum slitastjórnanna og skilanefndanna ásamt ráðuneytinu vinnur þetta fólk daginn út og daginn inn með þá löggjöf sem við setjum og rekst kannski á ákveðna agnúa sem við gætum bætt. Ég mundi því gjarnan vilja óska eftir því að við mundum fljótlega funda með skilanefndunum aftur til að ræða hvort þær teldu ástæðu til að við gerðum hugsanlega fleiri breytingar. Við gætum þá kannski gefið okkur betri tíma til að íhuga þær ábendingar.
Ég hef velt einu nokkuð fyrir mér. Ég hef stundum á tilfinningunni að ákveðnir einstaklingar eða ákveðnar stofnanir í samfélaginu hafi svona 800-númer eins og þekkjast í Bandaríkjunum, gjaldfrjáls númer sem hægt er að hringja í og panta ákveðna hluti. Tilfinningin í þessu máli er svolítið eins og við séum að vinna í bílalúgu á skyndibitastað og einhver kemur og pantar frumvarp og út koma lög. Við erum ansi rösk í að skila af okkur, eins og þeir vilja vera á skyndibitastöðunum.
Það sem mér fannst skipta mestu og það sem ég taldi mjög mikilvægt að fá fram á fundinum var að engin afturvirkni væri í lögunum. Lögin eins og þau eru núna standa, þau gilda, og varða ekki þá gjörninga sem hafa þegar átt sér stað. Lagabreytingin varðar bara þá gjörninga sem verða eftir að við samþykkjum þessi lög. Það var margítrekað að svo væri. Að því leyti taldi ég ekki ástæðu til að gera frekari athugasemdir.
Vegna hraðans á málinu og vegna þess að við í stjórnarandstöðunni höfum ekki sömu aðstöðu til að vinna mál og fá jafnmiklar upplýsingar og stjórnarmeirihlutinn hefur, sá ég ekki ástæðu til að vera á meirihlutaálitinu. Miðað við upplýsingarnar sem komu fram tel ég að breytingarnar muni skýra lögin betur og skerpa á vilja löggjafans eins og hann var þegar þetta var gert í þinginu eftir áramót í apríl 2009. Ég tel jafnframt mjög mikilvægt að ferlið haldi áfram, að þrotabúin fari úr greiðslustöðvunarfyrirkomulaginu og í almenna slitameðferð. Vonandi munum við einhvern tímann á næstu árum sjá fram á að hægt verði að loka þeim búum.