139. löggjafarþing — 29. fundur,  16. nóv. 2010.

landlæknir og Lýðheilsustöð.

190. mál
[20:12]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegi forseti. Við ræðum frumvarp að lögum um sameiningu á Lýðheilsustöð og landlæknisembættinu og er þetta mál að koma inn í þingið 16. nóvember 2010. Ætlast er til að við klárum málið fyrir þinghlé vegna þess að ný stofnun á að taka til starfa 1. janúar 2011.

Það hefur komið fram, virðulegi forseti, að enn er ekki búið að gera sérstaka fjárhagslega úttekt á þessu. Þó liggur fyrir að þegar núverandi ríkisstjórn kom í heilbrigðisráðuneytið lágu fyrir frumvarpsdrög sem höfðu verið send til umsagnar, þ.e. búið var að vinna í þessum málum. Þar var gert ráð fyrir að skipta ekki bara þessum stofnunum heldur fimm stofnunum, Lyfjastofnun, lyfjaafgreiðslunefnd, landlækni, Lýðheilsustofnun og sömuleiðis sóttvarnalækni, í tvennt, annars vegar stofnun sem mundi hafa eftirlit með heilbrigðisþjónustunni og hins vegar stofnun sem legði áherslu á forvarnir. Ég hef sem sagt ekki enn þá fengið útskýringu á því hjá hæstv. ráðherra af hverju ekki var farið í þessa fjárhagslegu úttekt.

Hv. þm. Siv Friðleifsdóttir fór yfir það að ýmis rök mæla með því að sömuleiðis sé skynsamlegt varðandi forvarnirnar eða heilsueflinguna, sem við erum sammála um að efla og styrkja í landinu, að haft sé eftirlit með henni eins og öðrum þáttum heilbrigðisþjónustunnar. Þess vegna var hugmyndin að hafa þetta tvískipt með þessum hætti.

Ný ríkisstjórn eða hæstv. núverandi dómsmálaráðherra, Ögmundur Jónasson, fékk Stefán Ólafsson prófessor til að vinna að þessu máli. Eftir því sem ég best veit er þetta unnið upp úr skýrslu hans. Það vakti nokkra athygli en látum það liggja á milli hluta.

Stofnanir eru eitt, stefnumótun er annað. Í nóvember 2008 var kynnt heilsustefna sem á að ná fram öllum þeim markmiðum sem hér er vísað til. Það er athyglisvert — ég veit að hæstv. ráðherra er nýkominn í embætti og hefur lýst yfir áhuga á því að skoða þetta sérstaklega og ég fagna því, ég er ekki kominn hér upp til að skamma hann, en mér finnst hins vegar rétt að benda á að í þessu hefur ekkert verið gert svo ég viti nema varðandi einn þátt heilsustefnunnar sem gengur út á það að banna transfitusýrur í matvælum. Ef ég veit rétt hefur það markmið náðst fram.

Undirbúningur við mótun heilsustefnunnar var þríþættur. Í fyrsta lagi voru greindar helstu aðgerðir á sviði lýðheilsu hérlendis og helstu stefnur og framkvæmdaáætlanir í nágrannalöndunum, auk þess sem horft var til áhersluatriða erlendra stofnana eins og Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar í lýðheilsumálum. Í öðru lagi var byggt á reynslu Íslendinga en auk þess stuðst við erlend gögn og skýrslur alþjóðastofnana um lýðheilsu. Í þriðja lagi var unnin aðgerðaáætlun með víðtæku samráði þar sem leitað var eftir áliti sem flestra þeirra sem málið varðar. Í því ferli voru haldnir fundir með fulltrúum stærstu sveitarfélaga landsins, fulltrúum verslunar, þjónustu og iðnaðar. Einnig var fundað með fulltrúum stéttarfélaga, frjálsra félagasamtaka, háskóla og fagstétta. Sjónarmið þeirra og áherslur voru mikilvægt innlegg í mótun aðgerðaáætlunarinnar.

Virðulegur forseti. Ég legg áherslu á þetta, ég ætla ekki að lesa alla heilsustefnuna, til þess gefst ekki tími, en bara til að þeir sem hér fylgjast með átti sig á hvað er um að ræða þá voru sett sérstök markmið og aðgerðir eftir markhópum. Ég ætla að vekja athygli á sumu af því. Markmið 6 var að stuðla að aukinni þekkingu almennings á næringarinnihaldi matvæla ásamt því að auka neyslu og aðgengi að hollum matvælum. Og fyrsta aðgerðin þar var að leita leiða í samvinnu við verslanir og framleiðendur matvæla til að draga úr salti, sykri, mettaðri fitu og transfitusýru í matvælum. Síðan er tilgreint hvernig á að mæla þetta. Næsta aðgerð gekk út á það að settar yrðu reglur um hámark transfitusýru í matvælum. Markmiðið var svo að í lok árs 2010 yrðu settar reglur um hámark transfitusýra í matvælum. Ég vil þakka hæstv. ríkisstjórn fyrir að hafa komið þessu í framkvæmd ef ég skil málið rétt að það sé orðið.

Síðan voru markmið fyrir börn og ungmenni. Þar var sérstök áhersla á hreyfingu og ekki síður næringu og mataræði og tilgreindir ýmsir hlutir sem hafa mikið verið í umræðunni síðan, eins og t.d. varðandi mötuneyti í leikskólum og grunnskólum þar sem lagt er upp með hvernig hægt er að bæta þar úr, því að það má færa full rök fyrir því að þar t.d. sé víða pottur brotinn. En þetta markmið átti við um ýmislegt fleira. Þetta varðaði ekki bara börn og ungmenni í framhaldsskólum, þetta varðaði sömuleiðis fullorðna. Þarna var t.d. gert ráð fyrir því að í lok árs 2009 hefðu allar undirstofnanir heilbrigðisráðuneytisins gengið á undan með góðu fordæmi og gert áætlun um öryggi og heilbrigði.

Það hvarflar ekki annað að mér en að allir séu sammála þessum markmiðum og flestum leiðunum, nógu margir komu nú að undirbúningi þessarar vinnu, en norræna velferðarstjórnin undir forustu fyrrverandi hæstv. heilbrigðisráðherra, Ögmundar Jónassonar, tók þetta og henti þessu út í hafsauga. Hverjir tapa á því? Það er fólkið í landinu. Í ofanálag, og það kemur svo skýrlega fram í ræðum hæstv. ráðherra núna — hann er auðvitað nýkominn að þessum málum — er hann líka í því erfiða verkefni, af því að því miður fór ríkisstjórnin þá leið, að sameina stærstu ráðuneytin, sem án nokkurs vafa var mjög óskynsamlegt. Við sitjum svo uppi með frumvarp um að setja á fót stofnun og það hefur ekki einu sinni verið gerð fjárhagsleg úttekt á því hvernig menn ætla að ná fram hagræðingunni.

Hv. þm. Siv Friðleifsdóttir fór ágætlega yfir það áðan að það er hægt að greina gríðarlegan pirring í fjármálaráðuneytinu varðandi það hvernig unnið hefur verið að þessu máli — eða réttara sagt ekki unnið að því. Ég segi alveg eins og er að ég er virkilega pirraður yfir þessu ef það fer fram hjá einhverjum. Af hverju í ósköpunum geta menn ekki, þó við séum ósammála um ýmislegt í pólitík, þeir sem eru í embætti hæstv. heilbrigðisráðherra sem eru svo sannarlega forréttindi og mikil ábyrgð, haldið á lofti heilsustefnu fyrir almenning? Það hefði verið í lagi ef nýr ráðherra og ný ríkisstjórn, þessi norræna velferðarstjórn, hefði mætt og bara gert betur, sagt: Hér er ekki nógu mikill metnaður. Við ætlum að gera betur. Það var ekki svo. Í tvö ár hefur ekkert verið gert ef undan er skilið þetta með transfitusýrur í matvælum og helsta ástæðan fyrir því er án nokkurs vafa framtak hv. þm. Sivjar Friðleifsdóttur.

Við sitjum uppi með þetta. Ég efast ekki um að sú vinna sem unnin var áður varðandi sameiningu stjórnsýslustofnana — og þar eru sóknarfærin þegar kemur að ekki bara hagræðingu heldur líka betri og faglegri vinnubrögðum, því að við vitum það t.d. hvað varðar eftirlitsþáttinn með heilbrigðisþjónustunni að hann mætti vera skilvirkari og skýrari. Til dæmis hefur Læknafélagið bent á að koma þyrfti á fót því sem þeir kalla umboðsmaður sjúklinga, en hvort við látum einhvern hluta starfseminnar heita það eða náum markmiðinu með öðrum hætti er alveg ljóst að við erum ekki með nógu samræmdar mælingar eða eftirlit með heilbrigðisþjónustu á Íslandi. Við gerum svo sannarlega mjög vel þegar kemur að heilbrigðisþjónustunni en þarna eru sóknarfæri ekki bara fjárhagsleg heldur líka fagleg. Það er óþolandi að fá núna eftir tvö ár þetta plagg þar sem annað ráðuneyti, hv. fjármálaráðuneyti, gefur því falleinkunn, því að það er ekkert annað sem sú umsögn gefur. Allir sem kunna að lesa texta sem þennan, ekki það að menn þurfi að vera sérstaklega vanir í því, sjá að fjármálaráðuneytið er að fara yfir þetta og segja að hér hafi menn ekki undirbúið sig og benda á hið augljósa, að það hafi ekki verið gerð fjárhagsleg úttekt, og fara síðan yfir þætti málsins sem eru í rauninni hið einfalda í þessu, húsnæðisþátturinn er það einfalda. Þetta er ekkert sérstaklega flókið, stofnanirnar eru á nokkrum stöðum og þar greiða menn ákveðna leigu, það þarf að segja upp því húsnæði og leigja nýtt. Þetta er einfaldi þátturinn en stærsti hlutinn af athugasemdunum sem koma hér fram er að mönnum finnst að ekki hafi verið unnið skynsamlega að málum.

Nú er það þannig að hæstv. ráðherra er auðvitað með fangið fullt af verkefnum. Það var fullkomlega galið, virðulegi forseti, af þessari ríkisstjórn að sameina þessi ráðuneyti, sérstaklega á þessum tíma, sérstaklega þegar við þurfum að vanda okkur í því sem er kannski vandasamast af öllu, að halda uppi heilbrigðisþjónustu á heimsmælikvarða eins og hún hefur verið, á tímum þar sem við höfum úr minni fjármunum að moða og ekki bara á þessu ári heldur líka því næsta.

Virðulegi forseti. Ég vildi kannski heyra hjá hæstv. ráðherra, vegna þess að það er nú þingmeirihluti í þinginu, hvaða sveigjanleika hann gefur hv. heilbrigðisnefnd til að fara yfir þetta mál í heildarsamhengi. Ég tel að það sé ýmislegt hægt að gera á skömmum tíma ef vilji er fyrir hendi. Ég hef lýst því hér yfir áður og lýsi því yfir aftur að ég er tilbúinn að leggja mitt af mörkum til að hjálpa til við að ná því markmiði að við séum áfram með heilbrigðisþjónustu á heimsmælikvarða. Það þýðir með öðrum orðum að maður er tilbúinn til að leggja sig allan fram í þeirri vinnu sem fram undan er í fjárlögunum, en það mun ekkert gerast nema það sé virkilegur vilji hjá núverandi meiri hluta og hæstv. ráðherra til að fara yfir þessi mál þannig að sómi sé að.

Ég hef ekki fengið nein rök gegn því af hverju Lyfjastofnun, lyfjaafgreiðslunefnd og sóttvarnalæknir eru ekki inni í þessum sameiningarhugmyndum. Ef þau eru til staðar, virðulegi forseti, væri gott að þau kæmi fram. Það er ekki nokkur einasti vafi að það eru miklir hagræðingarmöguleikar þegar kemur að eftirliti með lyfjum. Reyndar var það svo að ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar var með það á stefnuskrá sinni og það var komið inn í áætlun í okkar norrænu samvinnu, sem við veittum forstöðu árið 2009, að koma á einu norrænu heilsusvæði og allir, ég gekk úr skugga um það sjálfur, norrænu heilbrigðisráðherrarnir voru tilbúnir að vinna að því. Það hefði þýtt, virðulegi forseti, að fólk gæti farið á milli landa og fengið greitt úr ríkissjóði hvers lands ef það leitaði sér lækninga þar. Það mundi veita þvílík sóknarfæri fyrir íslenska heilbrigðisþjónustu og gæti gert það að verkum að við gætum nýtt bæði aðstöðuna hér betur og þann mannauð sem við höfum.

Það hefði líka þýtt og við vorum komin í samstarf við Svíþjóð um aðgang að markaðssvæði hjá Svíum varðandi lyf og við eigum mikla möguleika á því sviði í samstarfi við þessi lönd. Það á líka við hagræðingu varðandi eftirlitsþáttinn þar sem að stórum hluta þegar kemur að Lyfjastofnun og kannski stærstum eru menn að gera sömu hlutina í hverju landi. Ef menn flytja inn lyf til Noregs fara þeir í gegnum ferli sem þeir þurfa að fara aftur í gegnum ef þeir flytja lyf til Íslands. Þetta er þvert á það sem er á Evrópska efnahagssvæðinu almennt, ef menn flytja inn á eitt svæði geta þeir flutt inn á öll, en þannig er það ekki með lyfin og þarna eru mikil sóknartækifæri. Mér þykir miður að á þessum tveimur árum hafi menn ekkert nýtt þá vinnu sem búið var að leggja upp með og þau tækifæri sem okkur buðust í samstarfi við nágrannalöndin, sem oft eru kölluð af ástæðu vinaþjóðir. (Forseti hringir.) Ég vildi heyra hjá hæstv. ráðherra næstu vikurnar hvernig hann lítur á þetta. Höfum við einhvern sveigjanleika til að reyna að gera það besta úr þessu máli eða eru menn (Forseti hringir.) mættir til að keyra þetta mál í gegn eins og það lítur út hér?