139. löggjafarþing — 30. fundur,  17. nóv. 2010.

störf þingsins.

[14:08]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegi forseti. Ég ætla að ræða vinnulag í hv. viðskiptanefnd og hv. heilbrigðisnefnd, bara að koma sérstaklega upp og þakka samstarfsfólki mínu og formönnum í þessum hv. nefndum fyrir gott samstarf. Mér finnst þeir vinna hlutina mjög vel og ég efast ekkert um að þau orð sem ég hef núna um samstarfsmenn mína, bæði í stjórnarliðinu og stjórnarandstöðu, verði í öllum helstu fjölmiðlum í kjölfarið. [Hlátur í þingsal.]

Hins vegar eru efnisatriði sem við erum að fást við eðli máls samkvæmt mjög alvarleg og ég ætla sérstaklega að tala hér um hv. heilbrigðisnefnd. Við höfum að tillögu okkar sjálfstæðismanna, mín og hv. þm. Ragnheiðar Ríkharðsdóttur, fengið í heimsókn fulltrúa stofnana og það kemur í ljós að ekki hefur verið nein samvinna eða samráð á þessum tveimur árum frá því að hrunið varð, frá því að þessi ríkisstjórn tók við, við þessa aðila um hvernig eigi að vinna úr þessum málum. Mest áberandi hefur verið sá mikli vandi sem snýr að heilbrigðisstofnunum úti á landsbyggðinni og það erfiðasta í því máli er að ekkert hefur verið undirbúið, því miður.

Minna hefur hins vegar farið fyrir gríðarstórum upphæðum sem við eigum eftir að finna lausn á og sá vandi snýr að Sjúkratryggingum Íslands. 2.800 millj. kr. halli átti að vera á þessu ári en varð 1.800 millj. kr. af því að það var 1.000 millj. kr. gengishagnaður og miðað við þær forsendur sem lagt er upp með í frumvarpinu er ljóst að það verður u.þ.b. 3.000 millj. kr. halli, 3 milljarða kr., á þessu ári nema tilkomi ákvörðun um hvernig eigi að koma í veg fyrir það.

Ríkisendurskoðandi fór sérstaklega yfir það að síðasti hæstv. heilbrigðisráðherra sinnti ekki starfi sínu með því að vera ekki með stefnumótun hvað þetta varðar og við megum ekki láta það gerast aftur. Þess vegna er afskaplega mikilvægt að við tökum þessa umræðu af hreinskilni því að þetta vandamál (Forseti hringir.) fer ekki frá okkur og hæstv. ríkisstjórn og ráðherra verða að taka ákvörðun um hvernig á að ná endum saman hvað þetta varðar.