störf þingsins.
Virðulegi forseti. Hér á Alþingi í gær var til umræðu staða Össurar, stoðtækjafyrirtækisins, og einnig staða Icesave-samninganna. Ég veit ekki hvort það var tilviljun en í morgun var viðtal í útvarpinu við forstjóra fyrirtækisins þar sem hann sagði m.a. að Icesave-deilan hefði haft gríðarleg áhrif á viðskiptalífið og að erlendir markaðir hefðu nánast verið lokaðir íslenskum fyrirtækjum vegna hennar. Óleyst deilan hefði haft mjög neikvæð áhrif á ímynd Íslands og möguleika til fjármögnunar erlendis.
Svipaða sögu heyrum við frá forstjóra Landsvirkjunar sem fullyrðir að óleyst Icesave-deilan hafi tafið uppbyggingu og fjármögnun Búðarhálsvirkjunar og svo kom það fram í morgun að Moody's-lánshæfismatið telji að leysist deilan muni lánshæfismat Íslands lækka, en slíkt hefur bein áhrif (Gripið fram í.) á fjármögnunarkostnað íslenskra fyrirtækja.
Frú forseti. Ég er ekki hingað kominn til að velta mér upp úr fortíðinni — ég held að fortíðin skipti ekki máli, við getum öll fullyrt að við höfum haft rétt fyrir okkur í þessu máli. Það er vel að nú hillir undir betri samninga en áður en hins vegar hefur óleyst deilan haft mikinn kostnað í för með sér. Við getum skemmt skrattanum og farið að velta okkur upp úr fortíðinni, horft í baksýnisspegilinn í þessum sal en ég vona svo innilega að okkur takist að lyfta okkur upp úr þeirri orðræðu. Nú reynir á Alþingi. Munu þingmenn geta unnið saman að lausn þessa máls?
Ég held að atvinnulífið, heimilin og þeir 13 þúsund einstaklingar sem mæla göturnar eigi það skilið af okkur hér inni að þingmenn standi saman og freisti þess að leysa þetta mál (Gripið fram í.) með hagfelldum hætti. Við hljótum öll að vera sammála um að það sé betra að ljúka þessu máli.
Nú er það undir þingmönnum komið að horfa ekki of mikið í baksýnisspegilinn og fara að karpa um hver sagði hvað, hvenær og hvers vegna, heldur hitt: Hvernig leysum við þetta mál á sem bestan hátt fyrir land og þjóð? Nú er það þingmanna að standast þetta próf og kannski geta þeir um leið lækkað og bætt lánshæfismat sitt. (Gripið fram í.)