139. löggjafarþing — 30. fundur,  17. nóv. 2010.

störf þingsins.

[14:23]
Horfa

Ragnheiður E. Árnadóttir (S):

Virðulegi forseti. Þetta fer að verða árviss viðburður. Það líður að aðventu og þá hljótum við að fara að taka Icesave-málið upp á þinginu, Icesave-aðventan kemur senn.

Hv. þm. Magnús Orri Schram leggur til að þingið taki höndum saman og að við leggjumst öll á eitt við að leysa Icesave-málið. Það er góð og gild ósk frá hv. þingmanni. Þá vil ég leggja til að við horfum á þetta mál í heild sinni. Við erum, eins og hér hefur komið fram, að horfa upp á það að verið er að kynna samningsdrög úti um allan bæ án þess að það sé rætt á þingi, það hefur komið fram. Við vitum líka að til stendur að ríkisstjórnin skili áliti, svari Eftirlitsstofnun EFTA, fyrir 7. desember og ég held að það sé engin tilviljun að þetta mál fer á flug í fjölmiðlum núna. Nú er að koma enn einn fresturinn á þessu máli og allt ríður á að klára það fyrir þennan ákveðna frest. Við þekkjum þessa sögu. Svona hefur þetta verið í gegnum alla sögu þessa máls. Við munum 23. október 2009, 24. október átti varla að renna upp ef ég man rétt. Við munum pressuna fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna. Við þekkjum þetta.

Nú er komin dagsetningin 7. desember sem farið er að veifa framan í atvinnulífið og forsvarsmenn þess eru því farnir af stað. Ég vil gera það tilboð til ríkisstjórnarinnar að sýna stjórnarandstöðunni þá virðingu að tala um þetta mál heildstætt. Og við hv. þm. Magnús Orra Schram segi ég: Setjumst endilega yfir málið, setjumst yfir það heildstætt. Skoðum stöðu Íslands með hagsmuni Íslands að leiðarljósi. Er það betra fyrir Ísland að taka þau samningsdrög sem nú liggja á borðinu, að við göngum þann veg til enda og klárum það þannig? Eða er betra að fara með málið fyrir dómstóla, fara með það og klára það hjá ESA? (Forseti hringir.)

Við getum ekki tekið ákvörðun í þessu máli án þess að öll gögn málsins liggi fyrir og þess vegna segi ég: Tökum málið heildstætt, (Forseti hringir.) ræðum það saman ef við eigum að klára það saman.