139. löggjafarþing — 30. fundur,  17. nóv. 2010.

safnliðir á fjárlögum -- vinnulag í nefndum -- ESB -- Icesave o.fl.

[14:34]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (F):

Frú forseti. Það hefur ekki farið fram hjá neinum að hafin er mikil áróðursherferð fyrir nýjum Icesave-samningi þó að hann sé ekki tilbúinn. Ég hefði nú reyndar talið eðlilegt að menn kláruðu slíkan samning áður en þeir fara að reyna að selja hann úti um allt.

En hvað um það, gamlir vinir úr Icesave-deilunni skjóta upp kollinum hér og hvar, m.a. í sölum Alþingis. Þeir forstjórar sem voru hvað mest á bandi ríkisstjórnarinnar á sínum tíma láta í sér heyra og meira að segja eru lánshæfismatsfyrirtækin mætt til leiks í gegnum samfylkingarmanninn á Bloomberg, lánshæfismatsfyrirtækin [Hlátur í þingsal.] sem hafa nákvæmlega engan trúverðugleika lengur og eru svolítið kostuleg þegar þau mæta á sviðið núna. Á sama tíma og skuldatryggingarálag íslenska ríkisins, hinn raunverulegi mælikvarði á stöðu ríkisins, hefur batnað frá því að Icesave-samkomulaginu var hafnað kemur fulltrúi lánshæfismatsfyrirtækis og býðst til að selja aflátsbréf ef Íslendingar samþykkja nýja Icesave-samninginn.

En hvað um það. Það áhugaverðasta í þessu núna er að tekin hefur verið upp ný aðferð, fjármálaráðuneytið reynir að fá Samtök atvinnulífsins og aðra stórkapítalista til að beita sér fyrir samþykkt hins nýja samnings. Þá er komin upp sú sérkennilega staða að sósíalistarnir hafa náð saman við stórkapítalistana um tvö verkefni sem þeir vilja vinna að samtímis, annars vegar að koma skuldum gjaldþrota banka yfir á íslenskan almenning og hins vegar að koma í veg fyrir að íslenskur almenningur fái leiðrétt stökkbreytt lán sín í íslenskum bönkunum. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)