staða lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Frú forseti. Eins og svo mörgum hér á landi verður mér það fyrst fyrir þegar skammdegismyrkrið leggst yfir að seilast í Sturlungu og bergja af menningararfinum og hverfa fyrir svefninn aftur til 13. aldar. Það var róstusöm öld og sá grundvallarmunur var á þeirri öld og þeirri sem við nú lifum, þótt margt sé svipað, að þá var engin lögregla í landinu. Þá var líf almennings skelfilegt, þá hrundi íslenskt þjóðfélag.
Á okkar öld, þótt skammt sé af henni liðið, riðaði þjóðfélag okkar til falls, að sjálfsögðu með nokkuð öðrum hætti en á 13. öld. Þjóðfélagið okkar riðaði til falls og ég hygg að það fall hefði getað orðið miklu meira. Það hefur miklu minna munað á því að það fall og það hrun yrði víðtækara og enn þá skelfilegra en það sem við þurftum að upplifa. Það tókst að afstýra algjöru hruni. Hluta af því ber að þakka þeim stofnunum ríkisins sem virka vel. Þar er lögreglan í hæsta flokki. Lögreglan stendur sig með þvílíkum sóma að þeim peningum sem varið er til löggæslu er vel varið.
Hér eru óeirðir, hér ríkir óvissa, öryggisleysi, fátækt og atvinnuleysi en engu að síður virka stofnanir þjóðfélagsins, álagið á þeim er meira en (Forseti hringir.) á betri tímum. Ég dáist að því hvernig lögreglan hefur brugðist við þessu álagi og vonast til að betri tímar renni upp.