staða lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Virðulegi forseti. Ég þakka þær umræður sem hér hafa farið fram, þær eru mikil hvatning til hæstv. dómsmálaráðherra að breyta af stefnu sinni.
Ég varð fyrir vonbrigðum með ráðherrann þegar hann beitti því bragði ríkisstjórnarinnar að telja að ekki væri svo mikill niðurskurður hjá lögreglunni vegna þess að aðrir aðilar hefðu þurft að skera meira niður. Þetta er málflutningur sem ég get ekki sætt mig við, að það sé bara allt í himnalagi vegna þess að hægt sé að benda á einhverja aðra sem hafa það verra.
Á höfuðborgarsvæðinu, eins og hefur komið fram, eru oftar en ekki stóru glæpirnir, hér eru stóru vandamálin. Hér eru mótmælin, hér er stjórnsýslan, hér er Stjórnarráðið, hér búa yfir 200 þúsund manns. Hlutföllin eru svo ofboðslega stór hér. Þess vegna verður að taka fast á þessum málum og gera eitthvað í því að auka fjármagn til löggæslunnar á höfuðborgarsvæðinu ef ekki á hreinlega að fara illa. Hæstv. dómsmálaráðherra sat hér sjálfur í þinghúsinu þegar síðustu mótmæli gengu yfir og þeir voru ekki öfundsverðir þeir lögreglumenn sem stóðu hér og vörðu Alþingishúsið.
Þó að erfið staða sé í þjóðarbúskapnum — hv. þm. Magnús Orri Schram kom hingað upp og var að tala um að ekki væri hægt að veita meira fé til löggæslumála vegna ástandsins sem við búum við, hann var hér fyrir hálftíma að mælast til þess að ríkisstjórnin mundi sturta yfir íslenska þjóð öllum Icesave-reikningunum. Hvers lags málflutningur er þetta hjá ríkisstjórnartalsmanni? Þetta rekst allt hvert á annars horn og ef ríkisstjórn getur ekki séð til þess að grundvallarmannréttindum sé framfylgt, eins og því að hafa löggæslu sem getur starfað í landinu, þeirri ríkisstjórn er ekki við bjargandi.
Ég skora á hæstv. dómsmálaráðherra að endurskoða hug sinn og spyr á ný: Er ekki einhver leið til þess að fresta (Forseti hringir.) þessum niðurskurði eða hætta alfarið við hann vegna þess að vandamálið er stórt?