139. löggjafarþing — 31. fundur,  18. nóv. 2010.

svör ráðherra við fyrirspurnum.

[11:14]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Forseti vill geta þess áður en fleiri koma hér upp undir liðnum um fundarstjórn forseta að forseti getur ekki stjórnað því hvað ráðherrar segja í svörum sínum [Kliður í þingsal.] en hann getur aftur á móti fylgt því eftir að menn svari. Forseti mun ítreka við ráðherra að þeir svari þeim fyrirspurnum sem fyrir þá eru lagðar og gerir það hér með.