Landsvirkjun.
Virðulegur forseti. Ef um hlutafélag væri að ræða væri það sannarlega ekki einkahlutafélag þegar ríkið er eigandi alls hlutafjár. Það væri þá væntanlega opinbert hlutafélag en ég sé út af fyrir sig ekki ástæðu til að gera breytingar á því. Ég held hins vegar að það sé full ástæða til að við ræðum lagaumgjörð fyrirtækis eins og Landsvirkjunar og líka þá umgjörð sem sveitarfélögunum, af því að hv. þingmaður nefndi þau, er sett í lögum, Íbúðalánasjóði og ýmsum öðrum aðilum. Ég held að eitt af því sem við hljótum að draga lærdóm af eftir undangengin ár sé að í of ríkum mæli hafi menn haft færi til þess að stunda ekki áhættuvarnir, heldur áhættutöku beinlínis í fyrirtækjum sem að verulega leyti er ætlað almannahlutverk og eru í opinberum rekstri. Ég hygg að þó að við séum flest sammála um að lykilfyrirtæki, einkum í innviðum í okkar samfélagi, eigi að vera í opinberri eigu séum við sömuleiðis sammála um að áhættustarfsemi ýmiss konar eins og verðbréfaviðskipti sem virðast hafa verið stunduð bæði hjá sveitarfélögum og ríkisfyrirtækjum eigi betur heima hjá einkaaðilum og eigi ekki að stunda upp á reikning skattgreiðenda.