139. löggjafarþing — 31. fundur,  18. nóv. 2010.

ráðstafanir í ríkisfjármálum.

200. mál
[15:12]
Horfa

fjármálaráðherra (Steingrímur J. Sigfússon) (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Að sjálfsögðu geri ég ráð fyrir því að þegar niðurstöður liggja fyrir í almennum kjarasamningum og þróunin liggur þar með fyrir til næstu missira eða ára hvernig sem það nú verður, og nær það verður, verði það skoðað að tryggja að hlutur þeirra sem fá sín samfélagslaun í gegnum almannatryggingakerfið verði ekki látinn eftir liggja. En fyrir fram vil ég ekki gefa út yfirlýsingar um slíkt og þaðan af síður nefna fjárhæðir eða prósentur. Ég held að það sé ákaflega mikilvægt að vel takist til í skynsamlegum og raunhæfum kjarasamningum sem eru í samræmi við efnahagsástand og getu þjóðarbúsins og helst þannig að hugsað verði sérstaklega til þeirra sem eru á lægstu laununum eftir því sem samstaða getur orðið um slíkt. Að sjálfsögðu mun þá, eins og ég segi, í framhaldinu verða skoðað hvað telst rétt og skylt að gera gagnvart þeim sem að breyttu breytanda (Forseti hringir.) hafa tekið mið af slíkri þróun varðandi kjör sín.