ráðstafanir í ríkisfjármálum.
Frú forseti. Það er auðvitað enginn vafi á því og það blasir við hverjum manni að ef ekki hefði verið gripið til umtalsverðra aðgerða í fyrra til að styrkja tekjustofna ríkisins væri staðan til muna verri og hallinn miklu meiri.
Það er vissulega rétt að það er ákveðið frávik í því hverju einstakir tekjustofnar skila miðað við tekjuspána, beinu skattarnir almennt heldur veikari en óbeinu skattarnir gefa meira sem vissulega eru á vissan hátt misvísandi skilaboð. Það eru sömuleiðis ákveðin misvísandi skilaboð í því að tryggingagjaldsstofninn er núna kominn upp í tekjuáætlun á sama tíma og beinu skattarnir eru veikari þannig að það er ávallt eitthvert frávik frá þeim áætlunum og spám sem menn gera sem erfitt er að sjá nákvæmlega fyrir fram. Í það heila tekið hefur tekjuáætlunin að mestu leyti staðist vegna þess að óbeinir skattar vega að verulegu leyti upp slakann í beinu sköttunum. Það er ekki slæm niðurstaða að mínu mati í þeim óvissu aðstæðum sem við höfum þó farið í gegnum.
Ég veit að það er goðsögn um miklar skattahækkanir sem ég veit að ýmsir vilja viðhalda hér en ég held að það sé best að skoða (Forseti hringir.) þetta í ljósi þeirra mælikvarða sem sennilega eru nothæfastir við svona aðstæður, þróunar þessara tekna sem hlutfalls af landsframleiðslu og þá rétt höldum við í horfinu frá fyrra ári. Það er allt og sumt.