139. löggjafarþing — 31. fundur,  18. nóv. 2010.

ráðstafanir í ríkisfjármálum.

200. mál
[16:58]
Horfa

Helgi Hjörvar (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Þegar ég segi að í öllum aðalatriðum hafi fyrirætlanir í skattamálunum gengið eftir er rétt að hafa eitt í huga. Hv. þingmaður nefnir þessa tölu, 6,4 milljarða, og hv. þm. Birgir Ármannsson nefndi í ræðu sinni áðan að aðgerðirnar í fyrra áttu að skila 68 milljörðum. Auðvitað áttu allir von á að eitthvert frávik yrði vegna þess að tekjur gætu orðið nokkuð undir áætlunum. Tilhneigingin er sú að tekjur séu nokkuð ofáætlaðar þegar samdráttur er í samfélaginu á sama hátt og þær eru vanáætlaðar þegar uppgangur er. Sex milljarðar af 68 milljörðum er auðvitað frávik en miðað við heildartekjur ríkissjóðs, sem eru um 400 milljarðar, er það ekki meira en við mátti búast.

Ég vildi hins vegar spyrja hv. þingmann um það sem hann nefndi að við Íslendingar værum rík af auðlindum. Þegar við horfum heildrænt á skattamálin hljótum við líka að spyrja okkur: Eiga ríkissjóður og almenningur ekki að njóta þess hve rík við erum af auðlindum? Er ekki eðlilegt að kalla eftir því að það séu ekki heimilin og hið almenna atvinnulíf sem beri þessar auknu byrðar heldur fáum við í ríkari mæli arð af auðlindum okkar? Er ekki umhugsunarefni að sjávarútvegurinn til að mynda hefur greitt 25 milljarða á ári í rentur af kaupum á kvóta og leigu á kvóta og það hefði svo sannarlega getað, a.m.k. að verulegum hluta, runnið í almannasjóði ef ekki hefði svo óhönduglega tekist til við einkavæðingu auðlindarinnar á sinni tíð? Er ekki mikilvægt að vinda ofan af þeirri þróun?