139. löggjafarþing — 31. fundur,  18. nóv. 2010.

ráðstafanir í ríkisfjármálum.

200. mál
[17:21]
Horfa

Birkir Jón Jónsson (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég hef aðra spurningu til hv. þingmanns. Þegar maður flettir frumvarpinu eftir að hafa hlustað á kynninguna á því, að hér sé einungis um að ræða hækkaða skatta upp á 6 milljarða kr., auk þess sem ríkið muni fá 3 milljarða vegna skattlagningar þess sem fólk tekur úr séreign, sem eru um 10 milljarðar í heild sinni, finnst mér málið ekki hafa verið lagt fram á réttum forsendum vegna þess að það er jú rétt. Þegar við skoðum frumvarpið nánar kemur í ljós að ekki á að verðbæta bótaflokka. Tökum vaxtabætur, barnabætur. Það á að lækka húsaleigubætur. Við getum haldið áfram. Bara þær aðgerðir spara ríkissjóði 6,5 milljarða kr., eins og sagt er í frumvarpinu. Það á heldur ekki að hreyfa neitt við skattleysismörkunum. Forsvarsmenn ASÍ hafa verðlagt sparnað ríkisstjórnarinnar á 8 milljarða kr.

Þegar maður leggur þessa þrjá þætti saman, ef menn hefðu fylgt verðlagsþróun gagnvart þessu, erum við að tala um skattahækkanir, beinar og óbeinar, upp á 23,6 milljarða kr.

Ég spyr hv. þingmann hvort hann sé sammála þessari túlkun minni, að það sé hinn ískaldi raunveruleiki? Ef svo er, í ljósi þess að við horfum á vanskil margra heimila á húsæðisskuldum, að við sjáum mikla erfiðleika hjá fólki á húsaleigumarkaðnum, þar á líka að skera niður, telur hv. þingmaður að heimilin í landinu muni þola auknar álögur? Munum við þá ekki þurfa að horfast í augu við að enn fleiri heimili lendi í erfiðleikum á næsta ári við að ná endum saman? Hvert munu þessi ósköp leiða okkur á endanum?