ráðstafanir í ríkisfjármálum.
Frú forseti. Það er lágmark að hæstv. fjármálaráðherra fari rétt með mál þegar við tölum um svo alvarleg málefni. Ég hef ekki talað fyrir hækkunum á þessum bótaflokkum. Ég hef talað gegn því að norræna vinstri stjórnin skerði framlög til þessara málaflokka. Hæstv. ráðherra ætti að hafa rétt eftir hér. Og þegar hæstv. ráðherra kemur hér upp og lýsir því að hugsandi vinstri menn hafi einungis tvær lausnir á vanda dagsins í dag, þ.e. stórfelldan niðurskurð til fyrrnefndra hópa og stórfelldar skattahækkanir, sýnir það hve hugsunin er takmörkuð.
Við höfum farið ítarlega yfir það í dag að það eru til fleiri leiðir. Þriðja leiðin er sú að efla skattstofnana og þær leiðir eru til án þess að níðast á öryrkjum, öldruðum og barnafólki. Hæstv. ráðherra á að hætta að koma hér upp og hafa rangt eftir mér, vegna þess að ég talaði ekki beinlínis fyrir aukningu þarna heldur talaði ég gegn því að hin norræna vinstri stjórn væri að skera stórlega niður framlög til þessara málaflokka. Það er tvennt ólíkt.