139. löggjafarþing — 31. fundur,  18. nóv. 2010.

ráðstafanir í ríkisfjármálum.

200. mál
[18:18]
Horfa

Birgir Ármannsson (S) (andsvar):

Það eru nokkur atriði, hæstv. forseti, sem ég vildi nefna í tilefni af ræðu hæstv. fjármálaráðherra. Í fyrsta lagi af því að hæstv. ráðherra taldi upp nokkra þætti og taldi sig geta haldið langa ræðu um ýmislegt sem ríkisstjórnin hefði gert til þess að efla atvinnulífið. Ég ætla ekkert að gera lítið úr þeim málum sem hann nefndi í því sambandi. Þau hafa hins vegar á sér þann blæ að vera sértækar ívilnanir. Á sama tíma og ríkisstjórnin fer í lítils háttar sértækar ívilnanir í heildarsamhenginu, er verið að gera almenn skilyrði atvinnulífsins erfiðari. Það er vandinn.

Í annan stað vildi ég spyrja hæstv. ráðherra, fyrst ég hef tækifæri til þess núna, hvað líði framtíðarstefnumótun í skattamálum sem boðuð var, ef ég man rétt á síðasta ári, og skipuð var stór samráðsnefnd til þess að skoða. (Forseti hringir.) Ég vildi vita þetta vegna þess að við erum alltaf að krukka eitthvað í skattkerfið, hvort þetta væri í samræmi við heildarstefnu sem mótuð hafi verið með víðtæku samráði?