139. löggjafarþing — 31. fundur,  18. nóv. 2010.

ráðstafanir í ríkisfjármálum.

200. mál
[18:21]
Horfa

Ásbjörn Óttarsson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég ætla ekki að fara að pexa við hæstv. ráðherra um skattahækkanir eða lækkanir. Mig langar að spyrja hann einnar spurningar.

Mér er kunnugt um að einn sparisjóður sem er kominn í ríkiseigu hafi hækkað álag á erlend lán til fyrirtækis úr 2% upp í 7%. Þetta fyrirtæki er með allar sínar skuldir í skilum. Hefur aldrei greitt öðruvísi en á gjalddaga. Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra vegna þess að hann kom inn á það í ræðu sinni hversu mikilvægt það væri að hjól efnahagslífsins kæmust í gang og eins að fyrirtækin næðu aftur vopnum sínum. Þar er ég algerlega sammála hæstv. ráðherra.

Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra: Finnst honum eðlilegt að sparisjóður sem er í eigu ríkisins, sem ég ætla ekki að nafngreina skuli gera þetta? Ég geri mér grein fyrir því að hæstv. fjármálaráðherra mun ekki gefa neinar fyrirskipanir um það. Finnst honum eðlilegt að fjármálastofnun geti gengið fram með þessum hætti að hækka vaxtaálag á erlend lán hjá fyrirtæki sem er með allt í skilum úr 2% upp í 7% án þess að gefa nokkrar skýringar á (Forseti hringir.) því hvers vegna það er?