139. löggjafarþing — 31. fundur,  18. nóv. 2010.

sérstakur skattur á fjármálafyrirtæki.

196. mál
[18:36]
Horfa

Pétur H. Blöndal (S) (andsvar):

Frú forseti. Það er nú einmitt verið að dreifa þessu frumvarpi um innstæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta á þessu andartaki þannig að mér hefur ekki gefist færi á að lesa það. En það er alveg ljóst að eftir áfallið sem varð út af Icesave leggur þessi innlánstryggingarsjóður af stað á núlli og þar af leiðandi er engin trygging á innstæðum, hvorki há né lág. Ég legg því áherslu á að fá að vita hvort ekki væri ágætt núna í þessari stöðu að vera með ríkisábyrgð sem yrði þá ákveðin upphæð sem ríkissjóður tryggði. Þá væri það vitað að þær innstæður væru fulltryggðar með ríkisábyrgð. Hitt er bara einhver viljayfirlýsing ráðherra um að innstæður séu tryggðar. Það er enginn lagalegur fótur fyrir því. Stjórnarskráin bannar að veitt sé ríkisábyrgð án þess að þess sé getið í lögum og þessi ríkisábyrgð á innstæðum hefur ekki verið sett í lög. Ég tel því að menn ættu í rauninni ekki að vera með þetta frádrag út af innstæðum sem eru tryggðar, heldur hafa bara allar innstæður, allar skuldir í rauninni, en huga að því að veita ríkisábyrgð á innstæður. Þá gætu menn hugsanlega tengt það saman og haft þær innstæður undanþegnar þessu gjaldi fyrir bankana enda er þá búið að greiða fyrir innstæðuna.