139. löggjafarþing — 32. fundur,  22. nóv. 2010.

vetrarþjónusta Vegagerðarinnar utan höfuðborgarsvæðisins.

129. mál
[17:08]
Horfa

Fyrirspyrjandi (Birkir Jón Jónsson) (F):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svörin og hv. þingmanni fyrir að taka þátt í þessari mikilvægu umræðu. Ég fagna því að ekki eigi að draga enn frekar úr snjómokstri yfir vetrarmánuðina vítt og breitt um landið. Það vekur mig þó til umhugsunar þegar hæstv. ráðherra bendir á að af þessum lið eigi að skera niður um 7,7% af viðhaldi og vetrarþjónustu, þá hljóta þessi 7,7% að lenda mun harðar á öðrum liðum.

Svo ég vitni enn til samskipta minna við sveitarstjórnarmenn, m.a. í Norðusturkjördæmi og reyndar öðrum kjördæmum landsbyggðarinnar, hefur vegum til sveita verið mjög illa viðhaldið á síðustu tveimur til þremur árum. Of lítið fjármagn hefur farið í vegina sem hefur valdið því að þeir eru ekki boðlegir þeim sem þurfa að keyra þá daglega, þar á meðal skólabörnum sem keyrð eru fram og til baka á hverjum virkum degi. Þessum vegum er ekki sinnt og þeir verða algjör þvottabretti, eiginlega handónýtir eftir fyrsta eða annan rigningardag sumarsins. Síðan eru fjármunirnir einfaldlega búnir og umræddir vegir eru í óásættanlegu ásigkomulagi það sem eftir er vegna þess að Vegagerðin hefur svo takmarkaða fjármuni.

Nú veit ég að við höfum svo sem engin galdraorð hvað þetta varðar. Við vitum að það þarf að skera niður, ekki ætla ég að neita því. Fólk verður þó að búa við ákveðin grundvallarmannréttindi. Þegar maður horfir upp á það og verður vitni að því að heimilisbílar fólks eyðileggjast vegna þess að það þarf að keyra um þessa vegi verður náttúrlega ekki við unað.

Ég spyr hæstv. ráðherra út í frekari niðurskurð. Ég tel æskilegt að hv. samgöngunefnd (Forseti hringir.) fari í þennan lið fjárlaganna, hver framtíðarsýn og hver þjónusta Vegagerðarinnar verður í heild sinni á (Forseti hringir.) næsta ári.