öryggi á þjóðvegi 1 undir Eyjafjöllum.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka fyrirspyrjanda sérstaklega fyrir að hafa tekið þetta upp. Ég held að við sem höfum keyrt þarna undir Eyjafjöllunum höfum öll fengið það sterkt á tilfinninguna að það sé eins og vegirnir sjálfir séu að sökkva. Mér fannst það líka mjög áhugavert sem ráðherra minntist á að landið í kring væri að verða vatnssósa. Það skiptir virkilega miklu máli að halda áfram að fylgjast með svæðinu því þarna er gífurlegt magn af ösku sem verður að þessum erfiða aur í fjöllunum. Nú er það ekki aðeins þannig að sjórinn sæki að vegarstæðunum heldur má segja að fjöllin séu að koma til móts við sjóinn.
Nefndar voru þrjár ár en það vantar eiginlega sér fyrirspurn um stóra fljótið, Markarfljótið, (Forseti hringir.) og varnargarða meðfram því.