139. löggjafarþing — 32. fundur,  22. nóv. 2010.

öryggi á þjóðvegi 1 undir Eyjafjöllum.

171. mál
[17:22]
Horfa

samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra (Ögmundur Jónasson) (Vg):

Hæstv. forseti. Ég þakka þessar ábendingar. Í rauninni hef ég litlu eða engu við að bæta frá því sem ég sagði áðan og byggði á upplýsingum frá Vegagerðinni og Landgræðslunni sem hafa að því er ég best veit samstarf sín í milli. Það er alveg rétt, það þarf að skoða þessi mál heildstætt og vera á varðbergi. Ég hygg að stjórnsýslan og þá ekki síst Vegagerðin geri það mjög vel.

Um pylsur og bjúgu til sjávarins, að hætti hv. þm. Árna Johnsens, ræðum við á eftir.