ofanflóðavarnir í Neskaupstað.
Virðulegi forseti. Ég þakka fyrir góða umræðu. Það er gott að eiga að þingmenn sem vakta þessi mál. Það er gríðarlega mikilvægt að halda þessari umræðu á lofti og halda henni opinni með þeim rökum sem við höfum öll sammælst um.
Ég vil nefna líka í því sambandi þegar þingmaðurinn talar um fjölda starfa o.s.frv. og það er sú staðreynd að hluti af því efni og þeim smíðum sem þurfa að eiga sér stað varðandi upptakastoðvirkin hefur þegar flust til Íslands og gæti gert það í enn ríkari mæli í ljósi gengisbreytinga, þannig að við værum hugsanlega að tala um enn hagkvæmari framkvæmdir við þessar aðstæður en hafa verið áður fyrir íslenskan efnahag.
Varðandi frekari og skýrari viðbrögð að því er varðar tiltekna punkta á landakortinu þá verð ég að valda þingmanninum vonbrigðum vegna þess að ég læt hann ekki toga mig út í það beinlínis en þarna eru auðvitað til skýrar áætlanir, en eins og spurning þingmannsins ber með sér eru ofanflóðavarnir í Neskaupstað næstar á dagskrá.