139. löggjafarþing — 33. fundur,  23. nóv. 2010.

virðisaukaskattur.

208. mál
[18:22]
Horfa

Tryggvi Þór Herbertsson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það er hárrétt hjá hæstv. fjármálaráðherra að Evrópuþjóðir hafa lagt mikið upp úr því að eyða skattasamkeppni. En það er kannski ekki nákvæmlega það sama og að vilja ekki það sem við köllum „special economic zones“ eða fríverslunarsvæði . Það er ekki verið að reyna að eyða þeim.

Vandamálið með að láta erlenda aðila greiða virðisaukaskatt af vörum eða tækjum sem hann kemur með inn í landið til að nota í starfsemi sinni er að þessi sami aðili selur ekki neina þjónustu innan lands. Virðisaukaskattskerfið er hugsað þannig að neytandinn beri skattinn á endanum. Hugsanlega yrðu þá neytendur annarra landa að bera íslenskan virðisaukaskatt. Ég er aftur á móti sammála hæstv. ráðherra í því að ef þetta er það sem skilur á milli feigs og ófeigs þá er það ekki mjög merkileg starfsemi því tækjabúnaðurinn er náttúrlega ekki nema hluti af kostnaðinum við gagnageymslu. Eins og ráðherra segir ætti raforkan og svala loftið á Íslandi að gefa okkur samkeppnisforskot sem og ágætistengingar við önnur lönd, þó svo að tengingarnar til Norður-Ameríku mættu vera betri. En ég skora á hæstv. ráðherra að beita sér fyrir því að leiða þetta virðisaukaskattsmál til lykta sem fyrst.