139. löggjafarþing — 34. fundur,  24. nóv. 2010.

störf þingsins.

[14:17]
Horfa

Ragnheiður E. Árnadóttir (S):

Virðulegi forseti. Við bíðum sem fyrr spennt eftir helginni. En ég ætla að ræða annað mál og ég ætla að gera það sem ég geri kannski ekki mjög oft í þessum ræðustóli, ég ætla að lýsa ánægju minni með stefnu ríkisstjórnarinnar, m.a.s. stefnu ríkisstjórnarinnar í utanríkismálum. Hrósið snýr að Atlantshafsbandalaginu. Ég verð að segja að ég átti ekki sérstaklega von á því, og hafði svolitlar áhyggjur af því fyrir fram hvernig stefna Íslands kæmi fram á fyrsta leiðtogafundinum þar sem fulltrúar hinnar fyrstu hreinu vinstri stjórnar kæmu fram fyrir hönd íslensku þjóðarinnar. Ég verð að segja að þetta fór fram úr mínum björtustu vonum. Það að fyrsta hreina vinstri stjórnin lýsti ekki bara stuðningi, heldur miklum stuðningi við endurskoðaða grunnstefnu Atlantshafsbandalagsins þar sem m.a. umdeild atriði eins og eldflaugavarnir sem tryggja eiga öryggi bandalagsþjóðanna eru meitluð í grunnstefnu bandalagsins, veldur mér ánægju. Ég verð að segja að ég er ánægð með að ríkisstjórnin stóðst þar væntingar. Þrátt fyrir að einstaka hjáróma rödd hafi heyrst hjá einstökum þingmönnum Vinstri grænna eftir að fundinum lauk get ég sem sat ákveðinn fund í utanríkismálanefnd staðfest hér að þar höfðu þessir tilteknu þingmenn sérstakt tækifæri til að koma mótbárum sínum á framfæri en nýttu það ekki. Einnig gafst tækifæri til þess á fundi með yfirmanni herafla bandalagsins sem kom hingað sérstaklega til að hitta fulltrúa þingflokka en þá áttu Vinstri grænir ekki heimangengt og sátu ekki þann fund þannig að ég lít svo á að stefna ríkisstjórnarinnar hvað þetta varðar sé mjög skýr og fagna því sérstaklega.