fjárhagsleg staða háskólanema.
Frú forseti. Ég kveð mér hljóðs til að ræða um fjárhagslega stöðu háskólanema og það er svo sem ekki að ástæðulausu. Við þingmenn höfum fengið fjölmörg skilaboð úr háskólasamfélaginu, þ.e. frá þeim sem stunda nám við háskóla landsins, þar sem fólk fer ekki fögrum orðum um fjárhagslega afkomu sína. [Hlátur í hliðarsal.] — Ég heyri að það eru heilmikil læti hjá þingmönnum í hliðarsölum en það væri ágætt að fá hljóð í þessa umræðu, frú forseti.
Í dag er staðan sú að framfærslugrunnur háskólanema er um 120 þús. kr. og var ekki hækkaður við síðustu endurskoðun. Sá framfærslugrunnur er einfaldlega ekki í takt við raunveruleikann í dag. Verðlag í landinu hefur hækkað allverulega eins og allir þekkja og ef við tökum tillit til þess að leiguverð hefur líka hækkað — algengt leiguverð á stúdentagörðum er til að mynda 75 þús. kr. og ef við drögum 75 þús. kr. frá 120 þús. kr. framfærslugrunni eru eftir 45 þús. kr. sem eiga þá að standa undir allri neyslu, kaupum á skólabókum og fleira mætti nefna í þeim efnum. Það er alveg ljóst að kjör námsmanna hafa dregist aftur úr kjörum annarra þjóðfélagshópa og ég vil líka benda á mikilvægan punkt er snertir það að vinnumarkaðurinn er miklu erfiðari í dag en hann var fyrir örfáum árum. Fólk gat þá fengið ágæta sumarvinnu og jafnvel gátu sumir unnið með námi sínu og þannig náði fólk að koma sér í gegnum námið með skikkanlegum hætti.
Veruleikinn er allur annar í dag. Mér finnst við vera aðeins á eftir þegar við ræðum um kjör þessa hóps vegna þess að búið er að endurskoða til að mynda félagslega aðstoð hjá Reykjavíkurborg. Þar var grunnframlagið nýverið hækkað upp í um 150 þús. kr. Að auki samþykkti Reykjavíkurborg sérstaka desemberuppbót upp á 33 þús. kr., að við tölum ekki um atvinnuleysisbæturnar sem geta verið 150–170 þús. kr.
Ef við erum að tala um og meinum eitthvað með því að við viljum hvetja ungt fólk til náms og fólk til háskólanáms á þessum krepputímum verðum við að breyta þeim tölum sem við erum að ræða um í þessu samhengi. Það er einfaldlega ekki nægilegur hvati fyrir fólk til að stunda háskólanám og sumir hafa jafnvel ekki efni á því vegna þess að getur jafnvel verið hagstæðara að vera atvinnulaus eða þiggja félagslega aðstoð frá sveitarfélagi. Sá hvati á ekki að vera til staðar. Ég vil trúa því að þverpólitískur vilji sé í þessum sal til að breyta þessum áherslum og ég hvet hæstv menntamálaráðherra til allra góðra verka í þessu.
Ég skrapp inn á Facebook-síðu áðan sem var stofnuð til að undirstrika hversu mikil óánægja er með þessa stöðu. Um 2.000 manns eru skráðir á sérstaka Facebook-síðu þar sem stjórnvöld eru hvött til að endurskoða þessar áherslur sínar. Það er eðlilega mikill þrýstingur og ef við horfum til þeirrar kreppu sem Finnar fóru í gegnum á 10. áratugnum kemur í ljós að í kjölfarið fór ungt fólk hvað verst út úr þeim efnahagsþrengingum sem þá gengu yfir. Ég sé ekki annað en að við eigum að gjöra svo vel að einhenda okkur í að hækka grunnframfærsluna. Það er einn munur á þessum lánum sem við erum að veita og þeim bótum sem félagsleg aðstoð er og atvinnuleysisbæturnar að fólk mun á endanum borga þessar upphæðir til baka þegar það er komið út á vinnumarkaðinn. Það er allt sem hnígur að því að við eigum að endurskoða þennan grunn.
Þess vegna hef ég spurt og mun spyrja hæstv. ráðherra hvort það standi til að endurskoða þennan grunn. Það eru mjög slæm skilaboð ef það á að fara inn á næsta ár með óbreyttan grunn þegar við horfum upp á að það á að skerða á húsaleigubætur og skerða barnabætur. Margt af því fólki sem er í námi er líka barnafólk þannig að ef það á að skerða enn frekar kjör þessa hóps er ljóst að hvatinn til að stunda nám hér á landi mun minnka allverulega og það er það sem við viljum síst. Við höfum talað fyrir því hér að meðan erfitt er í ári og kreppa ríkir geti fólk notað þann tíma til að auka við menntun sína. Þess vegna þurfum við að breyta þessum áherslum hér og ég vonast eftir því að hæstv. ráðherra komi hingað með gleðilegar fréttir þess efnis að framfærslugrunnurinn sem er alveg ótrúlega lágur verði hækkaður.