139. löggjafarþing — 34. fundur,  24. nóv. 2010.

fjárhagsleg staða háskólanema.

[14:49]
Horfa

Skúli Helgason (Sf):

Virðulegi forseti. Við ræðum hér mikilvægt mál sem er fjárhagsstaða háskólanema í landinu. Ég held að engum blöðum sé um það að fletta að háskólastúdentar eru ekki ofsælir af þeim námslánum sem þeim standa til boða hjá lánasjóðnum, svokölluð grunnframfærsla til einstaklinga í leiguhúsnæði í dag er ríflega 120 þús. kr. Hins vegar hefur þessi grunnframfærsla hækkað um 74% á síðustu 10 árum, á sama tíma og vísitala neysluverðs hefur hækkað um 68%, þannig að við getum sagt að námslánin hafi hækkað um 6 prósentustig umfram verðbólgu síðasta áratuginn og staðan sé því heldur skárri en hún var í upphafi síðasta áratugar. Þar munar að sjálfsögðu langmest um þá 20% hækkun sem varð á grunnframfærslunni með ákvörðun ríkisstjórnarinnar haustið 2009.

Þegar við ræðum upphæð grunnframfærslu lánþega hjá LÍN verðum við að hafa í huga að í öllum útreikningum er miðað við að námsmenn hafi umtalsverðar atvinnutekjur samhliða námi. Tekjutillitið er núna 35%. Það er reyndar athyglisvert að það var ekki nema 10% fyrir örfáum missirum sem þýðir í reynd að á þeim tímapunkti sem allmargir námsmenn þurftu ekki raunverulega á námslánum að halda fengu þeir niðurgreidd námslán frá ríkinu.

Það er mín skoðun að námslánakerfið okkar eigi fyrst og fremst að vera þannig uppbyggt að námslán eigi að tryggja framfærslu þeirra nemenda sem af fjárhagsástæðum eiga ekki í önnur hús að venda. Þar liggur grundvallarskylda okkar og þannig stuðlar LÍN að jafnrétti til náms óháð efnahag. Ég sé hins vegar ekki ástæðu til þess að námsmenn sem eru með rétt innan við meðaltekjur fái einnig niðurgreidd námslán frá ríkinu.

Það er mikilvægt að skoða námslánin í samhengi við aðra framfærslu og aðra tekjumöguleika námsmanna. Vandinn í dag er vissulega sá að tekjumöguleikar námsmanna fyrir utan námslán eru miklu minni út af atvinnuleysinu og versnandi hag í atvinnulífinu. Þetta þurfum við að skoða sérstaklega og vinna okkur síðan inn í það framtíðarfyrirkomulag að við séum að vinna bug á óréttlæti eins og því að námslán séu greidd út eftir á og að þetta sé ekki sá vettvangur fyrir framfærslulán sem tilefni var til í upphafi.