raforkulög.
Hæstv. forseti. Það er mikilvægt að við tölum skýrt og ráðherrar geri það líka. Þetta var skýrt svar hjá hæstv. ráðherra og ég þakka fyrir það vegna þess að það mátti skilja á umræðunni áðan að menn væru ekki með það á hreinu hvort um yfirvofandi stefnubreytingu væri að ræða og vísa ég þar í ræðu hv. þm. Gunnars Braga Sveinssonar.
Það er gott að heyra að sjónarmið neytenda eiga sér rödd. Að þau sjónarmið hafi heyrst þegar þingmálið var undirbúið og er það vel. Ég vil líka minna á að það eru fleiri neytendur en þeir sem búa á höfuðborgarsvæðinu og nærsveitum sem teljast eigendur fyrirtækisins sem versla við fyrirtækið, svo því sé haldið til haga þegar fjallað er um þessi mál.