139. löggjafarþing — 34. fundur,  24. nóv. 2010.

Orkuveita Reykjavíkur.

205. mál
[15:40]
Horfa

iðnaðarráðherra (Katrín Júlíusdóttir) (Sf):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum nr. 139/2001, um stofnun sameignarfyrirtækis um Orkuveitu Reykjavíkur. Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar sem rekja má til ákvörðunar Eftirlitsstofnunar EFTA, sem er dags. 8. júlí 2009, í tengslum við rannsókn stofnunarinnar á fyrirkomulagi eigendaábyrgðar á Orkuveitu Reykjavíkur og Landsvirkjunar. Í ákvörðun ESA kemur fram að sú ótakmarkaða eigendaábyrgð sem Landsvirkjun og Orkuveita Reykjavíkur njóta í gegnum eignarhald fyrirtækjanna sé ekki í samræmi við ákvæði EES-samningsins um ríkisaðstoð. Hins vegar kemur fram í ákvörðuninni að ESA lítur svo á að heimilt sé að veita eigendaábyrgð vegna lánaskuldbindinga viðkomandi fyrirtækja, að því gefnu að greitt sé hæfilegt gjald fyrir. Í dag greiða fyrirtækin um 0,25% ábyrgðargjald af þeim lánum sem eigendaábyrgð er á.

Ákvörðun ESA frá 8. júlí 2009 var í formi tilmæla til íslenskra stjórnvalda um að grípa til nauðsynlegra ráðstafana þannig að fyrirkomulag eigendaábyrgða Landsvirkjunar og Orkuveitu Reykjavíkur verði í samræmi við skuldbindingar Íslands að EES-samningnum. Áður hafði ESA beint sams konar tilmælum til norskra stjórnvalda vegna sambærilegra mála.

Markmið frumvarps þessa sem ég mæli fyrir er að gera nauðsynlegar breytingar á lögum um Orkuveitu Reykjavíkur og tryggja að ábyrgðir eigenda Orkuveitu Reykjavíkur séu í samræmi við ríkisstyrkjareglur EES-samningsins. Í breytingunni felst að ábyrgðin er ekki ótakmörkuð eins og hún er nú, hún nái eingöngu til lánaskuldbindinga og að fyrir hana sé greitt hæfilegt ábyrgðargjald.

Frumvarp þetta var unnið í nánu samstarfi við Orkuveitu Reykjavíkur, fjármálaráðuneytið og Eftirlitsstofnun EFTA. Samhliða frumvarpinu eru lögð fram frumvörp til laga sem mælt var fyrir síðastliðinn fimmtudag til breytinga á lögum um Landsvirkjun og sömuleiðis á lögum um ríkisábyrgðir, þar sem lagðar eru til sams konar breytingar hvað varðar ríkisábyrgð þá er Landsvirkjun nýtur. Þau lög eru á forræði fjármálaráðherra. Eins og ég sagði áðan mælti hann fyrir báðum málunum síðastliðinn fimmtudag. Það má segja að málið um Orkuveitu Reykjavíkur sé systurmál máls fjármálaráðherra sem hann flutti um Landsvirkjun.

Í kjölfar ákvörðunar ESA var fenginn óháður aðili til að meta hvað teldist vera hæfilegt ábyrgðargjald vegna ábyrgða eigenda lána Orkuveitu Reykjavíkur. Það var gert með samanburði á lánskjörum með og án ábyrgðar eigenda. Liggur úttekt óháða aðilans fyrir eins og nánar er gert grein fyrir í greinargerð með frumvarpinu.

Að lokum, virðulegi forseti, ber þess að geta að í frumvarpinu er lagt til að í bráðabirgðaákvæði verði kveðið á um að ábyrgðir eigenda Orkuveitu Reykjavíkur á lánaskuldbindingum svo og skuldbindingum samkvæmt rammasamningum við stóriðjufyrirtæki sem stofnað hefur verið til fyrir gildistöku laganna haldi gildi sínu eins og til þeirra er stofnað þar til þær eru efndar að fullu. Verði frumvarpið að lögum mun það ekki hafa áhrif á núgildandi lánaskuldbindingar fyrirtækisins, nema að því leyti að fyrir þær verði greitt hærra ábyrgðargjald frá og með gildistöku laganna. Að öðru leyti eru engar breytingar á sjálfri ábyrgðinni.

Eins og fram kemur í kostnaðarumsögn með frumvarpinu verður ekki séð að frumvarpið, verði það að lögum, hafi áhrif á útgjöld ríkissjóðs.

Að þessu mæltu mælist ég til þess að frumvarpinu verði vísað til 2. umr. og hv. iðnaðarnefndar.