139. löggjafarþing — 34. fundur,  24. nóv. 2010.

landsdómur.

247. mál
[17:22]
Horfa

Pétur H. Blöndal (S) (andsvar):

Frú forseti. Það er grundvallaratriði að ákærður maður fái að vita fyrir hvað hann er ákærður. Hæstv. ráðherra mannréttindamála gerði ekki grein fyrir því fyrir hvað hann var að kæra og ákæra fyrrverandi hæstv. forsætisráðherra, Geir Hilmar Haarde. Hann sagði bara já. Hann bara ákærði. Hvorki ég né aðrir þingmenn né allir landsmenn vitum enn fyrir hvað hæstv. mannréttindaráðherra ákærði einstaklinginn, fyrrverandi forsætisráðherra, Geir Hilmar Haarde.